Afgerandi meirihluti vill þjóðaratkvæðagreiðslu Heimir Már Pétursson skrifar 16. október 2013 14:21 67 prósent landsmanna á aldrinum 18 til 75 ára vilja þjóðaratkvæðagreiðslu en 33 prósent eru andsnúnir slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu. mynd/afp
Afgerandi meirihluti þjóðarinnar vill að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir þetta ákall til ríkisstjórnarinnar um að standa við loforð að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Samkvæmt könnun sem Maskína gerði dagana 27. september til 10. október síðast liðinn vilja tæp 52 prósent landsmanna að aðildarviðræðunum við Evrópusambandið verði haldið áfram, 13,6 prósent vilja að hlé verði gert á viðræðunum og tæp 35 prósent vilja alfarið slíta þeim. Karlar eru hlyntari því að klára viðræðurnar, eða 58 prósent en 45 prósent kvenna vilja ljúka viðræðunum. Þegar fólk er spurt hvort það vilji að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna er afstaðan afgerandi. 67 prósent landsmanna á aldrinum 18 til 75 ára vilja þjóðaratkvæðagreiðslu en 33 prósent eru andsnúnir slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu. Stuðningurinn við þjóðaratkvæðagreiðslu er enn meiri meðal 34 ára og yngri en þar vilja 75 prósent þeirra sem tóku afstöðu að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram. Engu að síður er rétt rúmur meirihluti þjóðarinnar á móti aðild að Evrópusambandinu, eða 50,7 prósent sem eru ýmist fremur eða mjög andvíg aðild. Rétt ríflega 28 prósent landsmanna eru hlynt aðild en um 21 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg aðild. Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir þessar niðurstöður afgerandi og þeim sé að fjölga sem vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið. „Það er líka athyglivert hversu gríðahátt hlutfall af ungu fólki vill halda viðræðunum áfram, eða 75 prósent þeirra sem eru yngri en 34 ára“ segir Össur. „Þetta er ákall til ríkisstjórnarinnar um að standa við kosningaloforð beggja stjórnarflokkanna um að halda málinu áfram og setja það í þjóðaratkvæðagreiðslu. En mér sýnist að þessir ágætu herramenn sem stjórna landinu ætli að svíkja það eins og flest annað sem þeir lofuðu,“ segir Össur. Birgir Ármannsson formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ítrekað lýst andstöðu sinni við aðild íslands að Evrópusambandinu. Þegar þessi niðurstaða könnunar Maskínu var borin undir hann sagði hann að málin væru í þeim farvegi núna að hlé hefði verið gert á viðræðunum. Utanríkisráðherra hafi sett í gang vinnu óháðra aðila til að meta stöðu viðræðnanna og Íslands gagnvart sambandinu almennt. Þegar niðurstaða þeirrar vinnu liggi fyrir komi hún til umræðu á Alþingi og ákvörðun tekin um næstu skref.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira