Innlent

Grásleppuvertíðin í vor ekki svipur hjá sjón

Útlit er fyrir að grásleppuvertíðin í vor verði ekki svipur hjá sjón samanborið við undanfarin ár og að margir reyndir grásleppusjómenn muni sleppa vertíðinni alveg.

Ástæðan er að ráðuneyti sjávarútvegsmála, að tillögu Hafrannsóknastofnunar, hefur ákveðið að fækka veiðidögum úr 50 niður í 20 á komandi vertíð. Þá verður netafjöldi líka takmarkaður.

Þetta er 30 daga fækkiun, en Landssamband smábátaeigenda hafði lagt til 15 dag fækkun til að ná jafnvægi á erlendum mörkuðum, en töluvert er nú til af óseldum grásleppuhrognum frá vertíðinni í fyrra. Niðurskurðurinn er því tvöfalt meiri en Landssambandið lagði til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×