Þór Saari harðorður í garð Þorgerðar - áminntur fyrir orð sín Heimir Már Pétursson skrifar 13. febrúar 2013 16:28 Þór Saari var harðorður á Alþingi í dag. Mynd/ GVA.
Forseti Alþingis áminnti Þór Saari, þingmann Hreyfingarinnar, um að gæta orða sinna í umræðum á Alþingi í dag. Þingmaðurinn gagnrýndi Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, fyrir ummæli hennar í fjölmiðlum varðandi komu fulltrúa bandarísku Alríkislögreglunnar til Íslands. Í því sambandi hafði Þorgerður talað um Kanafóbíu af hálfu ríkisstjórnarinnar og meintan stuðning Hreyfingarinnar við stjórnina. Þetta væru dylgjur af hálfu Þorgerðar Katrínar. Hún ætti að biðja bæði innanríkis- og utanríkisráðherra afsökunar á ummælum sínum og Hreyfinguna á dylgjum hennar um hana. „Það ætti kannski frekar, fyrir háttvirtum þingmanni, að liggja að greiða til baka þær 1700 milljónir sem hún og eiginmaður hennar hafa fengið afskrifaðar áður en hún fer að breiða út ósannindi og dylgjur í þingsal. Þetta er algjörlega ósæmandi og hún á að vita það," sagði Þór Saari í þinginu. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, áminnti þá þingmenn um að þeir virtu ræðutíma og þingsköp.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira