Kæru vegna Álftanesvegar vísað frá 2. apríl 2013 19:16
Vegagerðin hefur ákveðið að semja við verktaka um lagningu umdeilds Álftanesvegar um Gálgahraun eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kæru nokkurra íbúa við hraunið. Verkið var raunar fyrst boðið út fyrir fimm árum en var þá slegið af vegna hrunsins. Síðastliðið sumar fór Vegagerðin aftur af stað með útboð, með þeim rökum að umferðaröryggi kallaði á nýjan veg út á Álftanes, opnaði tilboð í haust, en síðan hafa tvö óskyld kærumál frestað framkvæmdum. Annarsvegar vegna verktaka en hins vegar frá íbúum í hverfi því sem næst liggur, sem töldu að framkvæmdaleyfi væri úr gildi fallið. Íbúarnir ásamt samtökunum Hraunavinum stóðu jafnframt fyrir undirskriftasöfnun og mótmælafundum í haust og bentu á að vernda þyrfti hraunið sem meistari Kjarval hafði sem fyrirmynd. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nú vísað kæru íbúanna frá, og telur þá ekki eiga lögvarða hagsmuni þar sem lóðum þeirra var úthlutað eftir að fyrir lágu upplýsingar um lagningu vegarins. Þá hafi bæjarstjórn Garðabæjar ítrekað að framkvæmdaleyfi sé í gildi og fyrir liggi umhverfismat sem ráðherra hafi staðfest. Frá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar í dag að vegna frávísunar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, og þar sem kærunefnd útboðsmála hefði úrskurðað lægsta boð ógilt, hefði verið ákveðið að hefja viðræður við ÍAV, sem átti næstlægsta boð, upp á nærri 800 milljónir króna, og væri áformað að bindandi samningur yrði undirritaður um verkið. Fulltrúar íbúanna sem kærðu lýsa vonbrigðum en segjast ætla að íhuga næstu skref.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira