Megrunarfæði ógnar heilsu barna Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2013 10:31 Sigrún Daníelsdóttir segir velferð barnsins verði alltaf að ráða þegar kemur að mataræði. „
Að ala leikskólabarn á megrunarfæði ógnar eðlilegum vexti þess, heilsu og þroska. Slíkar beiðnir ættu umsvifalaust að hringja varúðarbjöllum í hugum leikskólastarfsfólks,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur í pistli sem hún birti á Eyjunni í gær. Þar vísar Sigrún í frétt af Stöð 2 þar sem fjallað var um séróskir foreldra leikskólabarna um um mataræði barnanna. Í fréttinni kemur fram að mikið sé beðið um að börn séu á glútenlausu, kolvetnaskertu eða fitusnauðu fæði. Hún segir þó að vel megi vera að oft séu eðlilegar ástæður þar að baki eins og fæðuóþol, trúarsiðir eða ofnæmi. „Hins vegar má einnig gera ráð fyrir því, miðað við þau óttablöndnu viðhorf til matar sem margir virðast hafa tileinkað sér nú á dögum, að stundum liggi fátt annað að baki slíkum kröfum en matarfælni og áttruflanir foreldranna sjálfra. Það er mikilvægt að leikskólar séu á varðbergi gagnvart slíku og skoði málið vandlega ef foreldrar bera upp óhóflegar eða óeðlilegar kröfur um mataræði barna sinna.“ Sigrún segir að aldrei ætti að samþykkja mataræðiskröfum sem samræmist ekki næringarþörfum barna og að beiðnir um slíkt ættu að vekja grunsemdir um aðbúnað og velferð barnsins. „Ég vona að allir sem vinna með börnum geri sér grein fyrir því að þeim ber lagaleg skylda til þess að tilkynna til barnaverndar ef grunur vaknar um að barn búi við aðstæður sem ógna heilsu þess og velferð,“ segir Sigrún. Ennfremur segir Sigrún mikilvægt að þeir sem vinni með ungum og jafnvel ómálga börnum beiti gagnrýnni hugsun þegar kemur að kröfum og óskum foreldra um mataræði þeirra. „Ég efast ekki um að oft eigi séróskirnar rétt á sér en það er samt mikilvægt að skýr rökstuðningur liggi fyrir ef halda á tilteknum fæðutegundum frá börnum. Velferð barnsins verður alltaf að ráða.“
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Innlent Fleiri fréttir Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Sjá meira