Sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna og peningaþvætti Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 22. október 2013 17:32 Fíkniefnin voru gerð upptæk.
Karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fíkniefnalagabrot fyrir að hafa í nóvember 2010 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni rúmlega 141 kíló af Marijúana, ásamt tóbaksblönduðu kannabisefni og kannabislaufum. Þá var maðurinn dæmdur fyrir peningaþvætti fyrir að hafa um nokkurt skeið aflað sér ávinnings að fjárhæð rúmlega 1,5 milljóna króna með sölu og dreifingu ótilteknis magns ávana- og fíkniefna. Málið komst upp þegar lögreglan hafði afskipti af fíkniefnaviðskiptum annars manns og veitti því athygli að farsími sem hann var með í fórum sínum hringdi látlaust, auk þess sem smáskilaboð bárust í símann. Taldi lögreglan þetta gefa til kynna að maðurinn stundaði sölu fíkniefna en við skoðun á símanum kom í ljós að símtöl voru flutt í hann úr síma sem skráður var á þann dæmda. Við húsleit á heimili mannsins fannst töluvert magn af kannabisefnum, skál með hassolíu í eldhúsi, kistill með pokum af kannabisfræjum, og 85 „zip-lock“ pokar með kannabisleyfum, ásamt öðru. Þá fundust fjármunirnir á heimilinu en maðurinn hélt því fram að hann hefði unnið fyrir þessum peningum með erfiðisvinnu og lagt þá fyrir en þeir væru ekki tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Sagðist hann í yfirheyrslu hjá lögreglu hafa farið að selja fíkniefni eftir að hann missti vinnu þegar kreppan skall á en hann hafi stundað söluna og ræktun í um tvö ár. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að skýringar mannsins á tilurð „sparnaðarins“ væru ótrúverðugar og dæmdi manninn í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi, ásamt því sem bæði fíkniefnin og peningarnir voru gerð upptæk.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira