Flugdólgurinn fer víða - Letterman sér spaugilegu hliðarnar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 9. janúar 2013 20:00
Fregnir af hinu örlagaríka ferðalagi Guðmundar Karls Arnþórssonar frá Keflavík til New York hafa dúkkað upp í fjölmörgum fjölmiðlum heimsins síðustu daga og í dag birti AP fréttastofan myndband af atvikinu sem farþegi tók. Eins og frægt er orðið þurftu farþegar vélarinnar ásamt flugliðum að yfirbuga Guðmund eftir að hann tók að láta afar ófriðlega um borð í vélinni. Að lokum var bókstaflega búið að líma Guðmund niður í sæti sitt og rataði ljósmynd af því meðal annars á forsíðu stórblaðsins New York Post. Guðmundur, sem búsettur er á Barbados verður kærður hér á landi af flugfélaginu og segir upplýsingafulltrúi Icelandair að málið sé í venjulegum farvegi. Og í gærkvöldi varð Guðmundur skotspónn þáttastjórnandans David Letterman sem gerði óspart grín að uppákomunni. Hann hóf þátt sinn á þennan veg: „Verið róleg, ekki láta mig sækja límbandið," sagði Letterman og kynnti því næst það sem hann kallaði nýjan dagskrárlið. „Vegna þessa höfum við glænýjan lið í þættinum: Við hvað er drukkni farþeginn hjá Icelandair límdur í dag?" Því næst mátti sjá samsetta mynd þar sem farþeginn var límdur við símastaur.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ákveða hvort að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Sjá meira