Allt lélegt hjá okkur Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 3. júní 2013 06:30 Karen Kjartansdóttir, leikstjórnandi íslenska liðsins, var næstmarkahæst í íslenska liðinu en skoraði samt bara tvö mörk. Ísland skoraði aðeins níu mörk úr opnu spili í leiknum en átta úr vítaköstum. Fréttablaðið/Vilhelm
Ísland tapaði með 12 marka mun, 29-17, fyrir Tékklandi í fyrri leik þjóðanna í umspili um laust sæti á heimsmeistaramóti kvenna, sem leikið verður í Serbíu í desember. Eins og tölurnar gefa til kynna þá gekk fátt upp. „Það gekk eiginlega ekkert upp. Það klikkaði allt sem gat klikkað og það gekk líka eiginlega allt upp hjá þeim,“ sagði Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi Íslands, eftir leikinn. „Við skutum illa á markvörðinn og skutum mikið í stöng og slá. Ég veit ekki hvort við höfum ætlað okkur of mikið. Við lendum á vegg í byrjun og látum brjóta okkur aðeins niður. Við styttum sóknirnar og fáum hraðaupphlaup í bakið,“ sagði Karen. Lítið sem ekkert gekk í sókninni og ekki hjálpaði til að langflestum sóknum Tékklands lauk með góðu færi og eina hraðaupphlaupið sem Ísland fékk í leiknum var varið. „Það var allt lélegt sem gat verið lélegt. Vörnin var léleg, markvarslan léleg og það vantaði sjálfstraust í sóknina. Það var lítill hraði í sóknarleiknum. Við þurfum bara að ná að keyra upp hraðann. Við vorum of hægar í leiknum.“ „Við vorum fullfljótar að hengja haus. Ég veit ekki hvort spennustigið hafi verið of hátt í byrjun. Hvar sem er litið var allt lélegt en um leið og trúin og baráttan kemur þá er hægt að bæta ótrúlega margt en að fara með 12 mörk út, við erum með bakið upp við vegg,“ sagði Karen sem hefur þó enn fulla trú á því að Ísland geti tryggt sér sætið á HM. „Þær unnu okkur með tólf mörkum og við getum alveg unnið þær með tólf. Þetta er ekkert mikið betra lið en við,“ sagði Karen, sem kvíðir því ekki að þurfa að sitja langa myndbandsfundi þar sem farið verður ítarlega yfir leikinn. „Það verður örugglega erfitt að sitja þessa fundi sem eru fram undan en Einar (Jónsson) og Gústi (Ágúst Jóhannsson) eru snillingar í að leikgreina lið og ég hef enga trú á öðru en að við finnum lausn á þessu en þetta liggur mest hjá hverjum og einum manni. Við eigum mjög mikið inni,“ sagði Karen að lokum.
Handbolti Mest lesið Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira