Meira fé varið í tækjakaup á Landspítalanum Hjörtur Hjartarson skrifar 3. nóvember 2013 20:42
Heilbrigðisráðherra segir að meira fé verði varið til tækjakaupa fyrir Landspítalann í ár en gert var í fyrra. Áætlun um endurnýjun tækja og búnaðar á spítalanum fram til ársins 2017 verður kynnt í næsta mánuði. Tillaga um fjárveitinguna verður sett inn í fjárlagafrumvarpið áður en kemur að annarri umræðu um frumvarpið á Alþingi í næsta mánuði. Fluttar hafa verið margar fréttir af slæmu ástandi innan Landspítalans undanfarnar vikur. Kristján Þór Júlíusson var gestur í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. „Það er alveg ljóst að sum tæki eru með þeim hætti að þau eru hreinlega úr sér gengin. Auðvitað eigum við að bæta úr þessum þáttum og það verður gert,“ sagði Kristján Þór. Í fjárlögum síðasta árs var samþykkt 600 milljóna króna viðbótarfjárveiting til tækjakaupa. Engin slík fjárveiting var hinsvegar í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár sem kynnt var í síðasta mánuði. Kristján reiknar með að enn betur verði gert á næsta ári en vildi þó ekki nefna ákveðna krónutölu. Ljóst má vera að erfitt verður fyrir heilbrigðisráðherra fá fjármagn úr ríkissjóði til leysa öll þau vandamál sem steðja að Landspítalanum. Formaður læknafélagsins telur að nokkur hundruð milljónir muni því miður duga skammt. „Ég hef nefnt töluna 3-4 milljarðar svona fyrsta kastið og það er sú tala sem forstjóri spítalalans hefur líka nefnt,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður læknafélags Íslands. Þorbjörn óttast að verða fyrir vonbrigðum þegar upplýst verður hver upphæðin er í raun og veru. Nánar um málið í myndbandinu hér að ofan.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Halda áfram að ræða veiðigjöldin Innlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Fleiri fréttir Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Sjá meira