Falleinkun á frumvarp um uppljóstrara Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. nóvember 2013 07:00 Persónuvernd þyrfti að gera greinarmun á heimildarmanni og uppljóstrara segir Róbert Marshall, fyrsti flutningsmaður frumvarps um vernd uppljóstrara. Fréttablaðið/Hörður „
Það þarf að fara mjög vandlega yfir þessar ábendingar,“ segr Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, um harða gagnrýni Persónverndar á frumvarp um miðlun upplýsinga og vernd uppljóstrara. Róbert og aðrir þingmenn Bjartrar framtíðar auk þingmanna Pírata flytja frumvarpið um uppljóstrara. „Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að uppljóstrurum, sem miðla upplýsingum um misgerð eða það sem þeir eru í góðri trú um að sé misgerð, verði veitt vernd gagnvart lögsóknum og annars konar aðgerðum,“ segir Persónuvernd um tilgang lagasetningarinnar. Að sðgn Persónuverndar skorti mjög á að í frumvarpinu sé fjallað sé um rétt þeirra sem bornir eru ávirðingum og á hver eigi að rannsaka tilkynningar um meintar misgerðir. Athugasemd er gerð við refsileysi gagnvart trúnaðar- og þagnarskylduákvæðum laga. „Ekki er unnt að skilja þetta ákvæði öðruvísi en svo að til dæmis læknar og heilbrigðisstarfsmenn mættu ávallt rjúfa skyldu sína til þagmælsku um hagi sjúklingi sé slíkt trúnaðarrof þáttur í uppljóstrun,“ segir Persónuvernd sem „varar sterklega“ við því að slík regla sé lögfest. Þá sé litið fram hjá því að friðhelgi einkalífs manna njóta verndar samkvæmt stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Ákvæði frumvarpsins um að aflétta þagnarskyldu samræmist ekki sjónarmiðum um meðalhóf. Skýra þurfi betur samhengi frumvarpsins við aðra löggjöf sem veiti vernd vegna uppljóstrana einkum ákvæði fjölmiðlalaga um vernd heimildarmanna. Segir Persónuvernd að lokum að gera þurfi „umtalsverðar breytingar“ til þess að frumvarpið geti „talist fela í sér viðunandi og skýran lagaramma“. Róbert Marshall segir Persónuvernd ekki gera greinarmun á heimildarmanni annars vegar og uppljóstrara hins vegar. Tekið sé á þætti heimildarmanna í nýlegum fjölmiðlalögum. Mikilvægt sé að uppljóstrurum verði ekki refsað, til dæmis með atvinnumissi. „Það þarf sérstaka löggjöf til að búa til lagaskjól fyrir þá sem eru að upplýsa um athafnir sem samfélagið metur að sé nauðsynlegt að upplýsa,“ segir þingmaðurinn.Þekktir uppljóstrararÚr greinargerð með frumvarpi um miðlun upplýsinga og vernd uppljóstrara: „Fjöldamörg alþekkt dæmi má nefna erlendis frá, eins og Mark Felt sem gekk undir nafninu Deep Throat en hann upplýsti blaðamennina Woodward og Bernstein um misgerðir Richards Nixons á meðan hann gegndi embætti forseta Bandaríkjanna. Þá má nefna Karen Silkwood sem ásakaði Kerr-McGee-orkuveituna um umhverfisafglöp og lést sviplega skömmu seinna. Sherron Watkins gegndi lykilstöðu hjá bandaríska orkufyrirtækinu Enron. Þegar hún tilkynnti Kenneth Lay, stjórnarformanni fyrirtækisins, um stórfelldar bókhaldsmisfellur hjá fyrirtækinu var hún færð niður um stöðu og hætti síðan störfum ári síðar. Nýlegustu erlendu dæmin eru uppljóstranir sem farið hafa fram á vefsíðunni WikiLeaks.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira