Mikil svifryksmengun í kjölfar björgunaraðgerða 1. nóvember 2013 19:45
Mikinn reyk lagði yfir Hafnarfjarðarbæ við brunann í höfninni í dag og voru stjórnendur margra fyrirtækja í nágrenninu ósáttir við þá ákvörðun að skipið skyldi dregið inn í höfn í námunda við byggð. Ef verr hefði farið hefði það getað lagt nánasta umhverfi í hættu. Hjalti Rúriksson, starfsmaður Orms og Víglundar, sagði að þeir hefðu fundið vel fyrir mengun frá svæðinu. „Þetta var náttúrulega bara þarna á bryggjunni þar sem við erum að vinna við og það stóð hérna reykurinn yfir allt meira og minna, sérstaklega þegar þeir voru að koma með skipið í morgun. Annars stóð reykurinn svo bara upp í bæ. Okkur fannst strax mjög vitlaust að það hafi verið að draga það hérna inn. Það hefði átt að halda því hérna fyrir utan og vel hægt að starta aðgerðum þar. Hörður Harðarson, vélsmíðameistari Trefja ehf., sagði að starfsmenn hefðu fundið vel fyrir reyk og lykt í húsnæðinu og sagði óskiljanlegt að ákveðið hefði verið að draga skipið inn í Hafnarfjarðarhöfn. „Mér finnst þetta alveg skelfilegt og í raun og veru algjört hugsunarleysi að draga skip með hundrað tonn af svartolíu inn í miðjan bæ til að reyna að slökkva hann. Mér finnst þetta alveg fáheyrt í stað þess að glíma við eldinn hérna fyrir utan eða í Straumsvík eða Helguvík í en ekki draga skipið inn í miðja íbúahöfn. Ég get svosem alveg skilið að höfnin sé neyðarhöfn og ef skip eru að sökkva, eins og við þekkjum dæmi um að það hafi komið skip með gati á og annað. En þarna tala menn að það sé verið að tala um flak. Þannig að ég sé ekki neyðina.“ Mikil svifryksmengun mældist í Hafnarfirði eftir reykinn sem lagði frá skipinu og voru send tilmæli til leikskóla og grunnskóla í námunda við svæðið um að halda börnum inni og íbúum bæjarins bent á að hafa glugga lokaða. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að Hafnarfjarðarbær hafi haft lítið um það að segja hvort að skipið hafi átt að koma til Hafnarfjarðar eða ekki. „Við erum neyðarhöfn og sem neyðarhöfn ber okkur skylda til að taka á móti í neyðarástandi. Við erum hluti af slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og það er sú aðstaða sem við erum í núna. Þannig að í mínum huga er það ekki spurning hvort við erum sátt eða ekki sátt heldur tökumst við á við þær aðstæður sem fyrir eru og treystum því að ákvörðunin að draga skipið inn hafi verið sú rétta á þeim tímapunkti sem hún var tekin og miðað við þær aðstæður sem skapast á staðnum.“
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Fleiri fréttir Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Sjá meira