Innlent

Lýst eftir Ásdísi Fríðu

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ásdísi Fríðu, en ekkert er vitað um ferðir hennar síðan seint síðastliðna nótt.

Ásdís, sem er til heimilis að Torufelli í Reykjavík, er um 175 sentimetrar á hæð. Hún er mjög grannvaxin, skolhærð með millisítt hár.

Ásdís er yfirleitt í dökkum jakka og gallabuxum en ekki verið vitað með vissu í hvaða fatnaði hún er í.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ásdísar eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×