Sverre tognaði á brjóstvöðva - ætlar að harka af sér á móti Síle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2012 12:19 Sverre Jakobsson. Mynd/Vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur sinn fyrsta leik af þremur í forkeppni Ólympíuleikanna í kvöld þegar strákarnir okkar mæta Síle. Ísland er í riðli með Síle, Japan og gestgjöfum Króatíu og tvö efstu liðin komast inn á Ólympíuleikana í London. Íslenska liðið varð fyrir smá áfalli í gær þegar varnartröllið Sverre Jakobsson meiddist á æfingu en þrátt fyrir að meiðslin séu á leiðinlegum stað þá ætlar hann að harka af sér. Kolbeinn Tumi Daðason ræddi við Guðmund Guðmundsson, landsliðsþjálfara í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Sverre tognaði á brjóstvöðva á æfingu í gær sem er mjög óvanalegt. Hann er ekki eins frískur og við vildum hafa hann. Við vitum ekki alveg hvað þetta þýðir. Ég held nú að hann muni reyna að harka þetta af sér en þetta er á svolítið erfiðum stað," sagði Guðmundur um meiðslin hans Sverra. Íslensku strákarnir voru ekki ánægðir með frammistöðu sína í jafnteflinu á móti hálfgerðu b-liði Norðmanna í Laugardalshöllinni á þriðjudagskvöldið en það var eini æfingaleikur liðsins fyrir forkeppni ÓL. „Við fórum yfir leikinn og skoðunum hann mjög vel. Við sáum að við getum lagfært mjög margt og þá aðallega varnarlega og í því að hlaupa til baka. Við fórum vel yfir það í gær. Við erum að öllum líkindum að mæta allt annarskonar vörn í kvöld á móti Síle heldur en við gerðum á móti Norðmönnum. Þetta verður allt annar leikur og allt annað dæmi," sagði Guðmundur. „Við erum búnir að undirbúa okkur eins og kostur er og vonum bara að það dugi til þess að vinna í kvöld. Við höfum það fínt í Króatíu. Við erum á ágætis hóteli þótt að það sé ekki neinn yfirburðar lúxus. Keppnishöllin er mjög flott og andinn er fínn. Við ætlum okkur að klára þetta verkefni og tryggja okkur inn á Ólympíuleika. Fyrsta skrefið þurfum við að stíga í kvöld og ætlum okkur ekkert annað en sigur," sagði Guðmundur að lokum.
Handbolti Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira