Innlent

Ölfusárbrúin tekin út

Mynd/Kristófer Helgason
Hópur sérfræðinga frá Vegagerðinni og verkfræðistofu hafa í nótt og í fyrrinótt verið að kanna ástand Ölfusárbrúar á Selfossi og ganga úr skugga um að hún beri enn alla þá þungaflutninga, sem um hana fara.

Brúin er orðin hátt í 70 ára gömul og var meðal annars kannað hvort þreyta væri komin í vírana, sem halda henni uppi.

Fréttastofunni er ekki kunnugt um niðurstöður þessara athugana, en lítilsháttar tafir urðu á umferð báðar næturnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×