Innlent

Sló ólögráða son sinn - fékk handarfar á kinnina

Konan var dæmd til að greiða syni sínum 150 þúsund krónur í miskabætur.
Konan var dæmd til að greiða syni sínum 150 þúsund krónur í miskabætur. mynd/Vísir.is
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi á föstudaginn í síðustu viku konu fyrir að slá ólögráða son sinn sem hún hafði í umsjá sinni. Konan sló piltinn einu sinni í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar á hægri vanga.

Hún játaði fyrir dómi að hafa löðrungað piltinn með sléttum lófa á jóladag árið 2010 og um ástæður þess sagði hún að pilturinn hafi verið mjög æstur og á slíkum stundum væri hann bæði sjálfum sér og öðrum hættulegur. Það var faðir piltsins sem fór með hann á heilsugæslu eftir að handarfar sást á kinn hans og hann tók einnig myndir af áverkunum sem voru lagðar fyrir dóminn.

Konan var dæmd fyrir líkamsárás og fyrir brot á barnaverndarlögum. Dómari frestaði hinsvegar refsingu yfir konunni þar sem rannsókn lögreglu lá niðri í sextán mánuði. Hún var dæmd til að greiða syni sínum 150 þúsund krónur í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×