Innlent

Um 163 þúsund fóru á skíði síðasta vetur

Frá Bláfjöllum.
Frá Bláfjöllum.
Tæplega 163 þúsund skíðaiðkendur fóru á skíði á liðnum vetri samkvæmt tilkynningu frá Samtökum Skíðasvæða á Íslandi. Langflestir iðkendur fóru í Hlíðarfjall á Akureyri og í Bláfjöll.

Raunar fóru um þúsund fleiri í Hlíðarfjall, eða rétt rúmlega 59 þúsund. Alls var opið í 121 dag í Hlíðarfjalli á móti 78 dögum í Bláfjöllum.

Þriðja vinsælasta skíðaútivistarsvæðið er Oddskarð á Austurlandi en þangað fóru þrettán þúsund skíðaiðkendur síðasta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×