Páll Óskar biður Gretu Salóme afsökunar á harðri gagnrýni VG skrifar 30. maí 2012 13:29 Greta Salóme Stefánsdóttir og Jónsi taka lagið. mynd/Daníel
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson hefur beðið Gretu Salóme Stefánsdóttur, söngvara og höfund Eurovision framlags Íslands í Azerbajdzan, afsökunar á að hafa gagnrýnt hana í viðtali við DV um helgina. Á Facebook-síðu sinni skrifar Páll Óskar: „Ég talaði við Gretu Salóme í 3 klukkutíma í gær. Við áttum mjög gott og fróðlegt samtal, og okkur leið báðum betur á eftir. Á laugardaginn, keppnisdaginn sjálfann, spratt upp mjög leiðinleg umræða í netheimum þar sem Gretu Salóme var úthúðað vegna meints aðgerðaleysis í mannréttindamálum. Ég tók þátt í þessum umræðum, þar sem ég hnaut sérstaklega um orð hennar: „Mannréttindabrot eru ekki hluti af þessari keppni." Þar var ég Gretu Salóme hjartanlega ósammála, og væri það enn þann dag í dag, ef ég væri ekki búinn að ræða við hana persónulega og fá hennar hlið á málinu. Ég gekk svo langt að segja „Þögn er sama og samþykki" og ýjaði að því að Greta væri þar með að samþykkja mannréttindabrot með því að því líta í hina áttina, og slíku framferði hef ég alltaf verið mótfallinn, og er enn." Ástæðan fyrir gagnrýni Páls Óskars voru ummæli Gretu Salóme í fréttum Stöðvar 2 á föstudaginn síðasta, daginn fyrir lagakeppnina í Bakú. Þá var hafður eftir henni hluti af viðtali sem tekið var við hana og birtist í fréttum Stöðvar 2. Orðrétt hljóðuðu ummæli hennar í fréttinni svona: „Það hefur oft verið tekið fram að þetta sé ekki pólitískur vettvangur og við erum auðvitað bara komin hingað til að taka þátt í lagakeppni og mannréttindabrot eru náttúrulega ekki hluti af þessari keppni." Páll Óskar telur að þarna hafi orð Eurovison-farans hafi verð tekin úr samhengi. Þannig skrifar hann á Facebook-síðu sína. „Nú er komið í ljós að orð hennar voru slitin úr samhengi. Það er auðséð þegar viðtalið við hana er lesið í fullri lengd. Þess vegna vil ég biðja Gretu Salóme afsökunar á orðum mínum „Þögn er sama og samþykki", vegna þess að Greta Salóme þagði ekki. Hún svaraði spurningum blaðamanns af hjartans sannfæringu og eftir bestu vitund. Mér þykir það miður að hafa tekið þátt í þessari geðshræringu sem myndaðist í kjölfar þessa fréttaflutnings og vona að Greta sjálf geti fyrirgefið mér á móti." Ekki er nákvæmlega ljóst hvað breytti afstöðu Páls Óskars þar sem ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar, en Greta Salome sagði sannarlega að mannréttindabrot væru ekki hluti af þessari keppni, líkt og Páll Óskar fordæmdi í upphafi. Þá er ljóst að hvorki hún, né allir keppendur Eurovision, utan hina sænsku Loreen, sýndu mannréttindasinnum í Bakú stuðning í verki. Hitt er þó að hún svarar fréttamanni sannarlega af bestu vitund í viðtalinu aðspurð um mannréttindabrotin í Bakú. Meðal annars dregur hún í efa að sænska söngkonan Loreen, sú sama og sigraði Eurovision-keppnina, hafi látið sig mannréttindi varða þegar hún heimsótti mannréttindaskrifstofu í borginni, en hún var harðlega gagnrýnd fyrir uppátækið af yfirvöldum þar í landi. Þá bætir Greta Salóme við í lok viðtalsins: „Mannréttindabrot eru einfaldlega ekki hluti af þessari keppni. Við erum bara komin hingað til að gera okkar besta í keppninni." Þess má geta að íslenska framlagið hafnaði í 19. sæti af þeim 26 löndum sem tóku þátt í Eurovision á úrslitakvöldinu. Í ljósi umdeildra ummæla Gretu birti Vísir samtal fréttamannsins í heild sinni svo allra sanngirni sé gætt. Það má lesa hér. Ummæli Páls Óskars má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira