Innlent

Býst við að fjórðungur lögmanna muni kjósa nýjan formann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brynjar Níelsson er að hætta sem formaður Lögmannafélagsins.
Brynjar Níelsson er að hætta sem formaður Lögmannafélagsins.
Töluverð spenna ríkir á meðal lögmanna því nýr formaður Lögmannafélags Íslands verður kosin á aðalfundi í kvöld. Í framboði eru tveir félagar, þau Jónas Þór Guðmundsson, sem er núverandi varaformaður, og Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður á Mandat lögmannsstofu. Brynjar Níelsson, formaður félagsins, hefur setið í tvö ár en ætlar ekki að gefa kost á sér áfram.

Brynjar segir að á bilinu 8-900 manns hafi atkvæðarétt en býst við að um 200 manns muni kjósa. „Við þurfum að gera breytingar á þessu og gera kosningarnar rafrænar," segir Brynjar í samtali við Vísi. Brynjar segir þetta sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að lögmenn séu skyldaðir til þess að eiga aðild að Lögmannafélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×