Verður að bregða búi verði Búlandsvirkjun að veruleika 5. maí 2012 18:45
Bóndi í Skaftárhreppi segist þurfa að bregða búi verði Búlandsvirkjun að veruleika. Hún segir landið ekki til sölu og sveitarfélagið sé betur komið án framkvæmda í Skaftá. Suðurorka sem er í eigu HS Orku og Íslenskrar orkuvirkjunar hefur í þrjú ár undirbúið 150 megawatta virkjun í Skaftá undir nafninu Búlandsvirkjun. Þar er áætlað að veita Skaftá um göng í nýtt lón á Þorvaldsaurum og þar yrði stöðvarhús þar sem hluti af rennsli Tungufljóts yrði náð með tveimur stíflum en vatninu er síðan skilað aftur um göng til Skaftár. „Ég vil meina að þetta hafi stórskaðleg áhrif á þá atvinnustarfsemi fyrir er en það er landbúnaður og ferðamennska," segir Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi á Ljótarstöðum í Skaftártungu. „Ég vil meina að sveitarfélagið sé betur komið án þessarra framkvæmda."eiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi á Ljótarstöðum í Skaftártungu.Heiða á hluta af landinu við Tungufljót þar sem áætlað er að reisa virkjunina og segir hún að ef hún missir það svæði myndi hún þurfa að bregða búi. „Tapi ég þessu landi þá er þetta bara einfalt mál, það er ekkert hægt að búa þarna. Kannski með 300 kindur en ekki þann fjölda sem ég bý með í dag og ætlar mér að búa með," segir Heiða. Til þess að hægt sé að reisa virkjunin þarf að kaupa bæði land og vatnsréttindi við tungufljót og segist Heiða hafa engan áhuga á að selja sinn hluta af landinu. „Ég tel mig bara ekki hafa nokkurn rétt til að gera þetta og mun ekki gera," segir Heiða. „Það er ekkert falt þarna. Það eru þá bara eignanámsaðgerðir ef að á að ganga svo langt, það er bara einfalt mál." „Ég vil sjá þessar virkjanir í verndarflokk - það er einföld skoðun - þar tel ég þær eiga heima. Þetta eru hagsmunir, við erum bændur, viljum við láta framleiða matvæli í landinu, og ekki bara það - skaftárhreppur byggir á landbúnaði og ferðaþjónustu, hún er vaxtarbroddur. Tungufljótið er blátær veiði á. Það skýtur skökku við heimsmyndina í dag að eyðileggja hana, það er alveg morgunljóst."
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira