Innlent

Atvinnuleysið á Íslandi lægra en í flestum evruríkjum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Runólfur Ágústsson er stjórnarformaður Vinnumálastofnunar.
Runólfur Ágústsson er stjórnarformaður Vinnumálastofnunar.
Skráð atvinnuleysi í maí var 5,6% og lækkar um 0,9 prósentustig á milli mánaða, samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunar. Spá stofnunarinnar fyrir júní er að atvinnuleysi fari undir 5% og verði á bilinu 4,6-5%. Atvinnuleysi á Íslandi er orðið með því lægsta í Evrópu, en meðalatvinnuleysi í evruríkjunum er um 11%. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er um 8%.

Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunar, segir að stærstan þátt í þessari lækkun eigi verkefnið vinnandi vegur, sameiginlegt átaksverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um sköpun starfa. Einnig spili árstíðabundin sveifla þarna inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×