Innlent

Vörður nær í vélarvana bát

Vörður, björgunarskip Landsbjargar á Patreksfirði
Vörður, björgunarskip Landsbjargar á Patreksfirði
Vörður, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði er nú á leið að sækja bát sem er vélarvana. Um er að ræða handfærabát sem er um 17 sjómílur utan við mynni Patreksfjarðar.

Báturinn er á reki en spegilsléttur sjór er og því engin hætta á ferðum. Reiknað er með að Vörður komið að bátnum núna á ellefta tímanum.

Hann mun taka handfærabátinn í tog og ef allt gengur að óskum munu þeir koma í höfn fyrri hluta nætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×