Innlent

Gæti leitt til fækkunar ferðamanna

Höskuldur Kári Schram skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, óttast að vandi evruríkjanna muni leiða til fækkunar ferðamanna hér á landi og versnandi viðskiptakjara fyrir íslensk fyrirtæki.

Rætt var um stöðu evrunnar og áhrif evruvandans á þróun Evrópusamstarfsins á Alþingi í dag. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hóf umræðuna en hann sagði ljóst að evrunni verði bara bjargað með meiri samruna Evrópusambandsríkja.

„Þetta er hin stóri vandi Evrópu. Þetta ýtir undir það að við Íslendingar endurskoðum frá því sumarið 2009. Ég er þeirra skoðunar að það eigi að gera hlé og láta þessa atburði ganga fram og síðan er það þjóðarinnar að ákveða hvort við eigum að halda áfram með þessa umsókn," sagði Illugi.

Undir þetta tóku þingmenn Framsóknarflokks en Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði hins vegar þörf á sterkari umgjörð fyrir krónuna.

„Það sést best á því að við erum enn læst í viðjum gjaldeyrishafta og 75 prósent atvinnurekenda í landinu telja sig ekki hafa trú á því að íslensk króna sé framtíðar gjaldmiðill landsins."

Steingrímur J. Sigfússon sagðist ótttast áhrif evruvandans á íslensk efnahagslíf.

„Það er líklegast að neikvæð áhrif af þessu berist fyrst til okkar í gegnum versnandi viðskiptakjör, þyngsli í útflutningsstarfsemi og hnökrar í bankaviðskiptum ef þau verða í ólagi í þessum löndum og hugsanlega dregur þetta úr sókn ferðamanna frá Evrópu til landsins," sagði Steingrímur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×