Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni VG skrifar 2. júní 2012 13:15
LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. Í samþykkt þessara félaga kemur eftirfarandi fram: „Vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum sjávarútvegi verði frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld sem nú eru til meðferðar á Alþingi að lögum er því beint til félagsmanna að halda skipum sínum ekki til veiða eftir sjómannadag. Útvegsmenn munu í næstu viku funda með starfsfólki, sveitarstjórnum og fjölmörgum aðilum sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi um áhrif þess ef frumvörpin verða að lögum." Svo segir að þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir fjölmargra aðila við frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld sem nú liggja fyrir Alþingi hafa þau ekki tekið nauðsynlegum breytingum að mati útgerðanna. Útvegsmenn segjast ítrekað hafa leitað eftir samstarfi við stjórnvöld um niðurstöðu um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða en án árangurs. „Útvegsmenn líta á það sem neyðarúrræði að halda skipunum ekki til veiða, þó að um tímabunda aðgerð sé að ræða í þetta sinn," segir ennfremur í samþykktinni. „Okkur er ljóst að stöðvun fiskiskipaflotans mun hafa áhrif á fjölmarga aðila sem tengjast sjávarútvegi. Við biðjum þá alla að virða þessa ákvörðun enda væri ábyrgðarlaust að bregðast ekki við þeirri alvarlegu stöðu sem stefnir í. Markmið okkar er að koma í veg fyrir það mikla tjón sem við blasir," segir svo í lokin.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Fleiri fréttir Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Sjá meira