Gera hryllingsmynd fyrir vestan 1. febrúar 2012 18:00 Baldur Páll Hólmgeirsson leikstýrir vestfirskri hrollvekju ásamt Elfari Loga Hannessyni og Eyþóri Jóvinssyni.
Baldur Páll Hólmgeirsson, leikstjóri og kvikmyndatökumaður, vinnur nú að gerð nýrrar stuttmyndar sem ber heitið Gláma. Myndin er hrollvekja og gerist á Hótel Núpi í Dýrafirði á Vestfjörðum. Myndin er sögð byggja á sönnum atburðum og fjallar um kokk sem fenginn er til að setja upp veislu á sumarhóteli að vetri til. Einhver misskilningur verður og þegar kokkurinn mætir á staðinn uppgötvar hann það að hann er þar einn og þá byrjar fjörið. Gláma, nýtt vestfirskt kvikmyndafélag, stendur að baki myndinni en með aðalhlutverk fer Elfar Logi Hannesson. Handritið sömdu Baldur Páll Hólmgeirsson, Elfar Logi Hannesson og Eyþór Jóvinsson. Baldur Páll segir Elfar félaga sinn hafa átt hugmyndina að handritinu sem tók eina kvöldstund að skrifa. „Við settumst þrír niður og sömdum handritið á einni kvöldstund. Það gekk mjög snarpt fyrir sig enda erum við allir mjög sammála og samrýndir." Tökur á myndinni hófust fyrir hálfum mánuði og lauk þeim síðastliðna helgi. Nú á aðeins eftir að klippa myndina og semja tónlistina við hana. „Við tókum frá tvær helgar í tökur og eyddum þeim á Hótel Núpi. Dvölin á hótelinu var mjög draugaleg. Ég varð þó ekki var við neitt undarlegt en mér skilst að fólk hafi orðið vart við einhver skringilegheit í húsinu." Ekki er farið að huga að frumsýningu myndarinnar ennþá en Baldur vonar að hægt verði að sýna hana í bíóhúsinu á Ísafirði um páskana. „Það er ekki víst að við náum að klára myndina fyrir þann tíma, en það væri gaman ef það tekst."- sm
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira