AGK búið að finna eftirmann Guðjóns Vals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2012 12:30 Fredrik Petersen. Mynd/AFP
Danska stórliðið AG Kaupmannahöfn hefur fundið eftirmann Guðjón Vals Sigurðssonar sem mun yfirgefa félagið í vor. AG hefur samið við sænska landsliðsmanninn Fredrik Petersen sem er einn besti vinstri hornamaður í heimi. Fredrik Petersen lék með sænska landsliðinu á Evrópumótinu í Serbíu en hann kemur frá danska félaginu Bjerringbro-Silkeborg þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Petersen er 29 ára gamall og er uppalinn hjá Ystad í Svíþjóð. Petersen þekkir vel til nokkurra leikmanna AG því hann spilaði á sínum tíma með Snorra Steini Guðjónssyni og Mikkel Hansen hjá danska félaginu GOG Svendborg TGI. Petersen hefur um nokkurt skeið verið eftirsóttur meðal bestu félagsliða heims þar á meðal liðum í þýsku úrvalsdeildinni og á Spáni. Svíinn hefur ekki viljað fara frá Danmörku þar sem hann hefur kunnað einstaklega vel við sig þar. „AG er óskaklúbburinn minn. Ég er kominn í stærsta liðið á Skandinavíu og í lið sem er með tvo heimsklassaleikmenn í hverri stöðu. Ég vil verða í toppliði í Evrópu og spila um stóru titlana. Það er ekki hægt að finna betra félag í Danmörku eða annarsstaðar í Evrópu," sagði Fredrik Petersen.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Enski boltinn Fleiri fréttir Donni þarf líka að fara í aðgerð „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Haukakonur upp í þriðja sætið Strákarnir hans Dags fengu skell Elín Rósa var atkvæðamikil þegar Blomberg-Lippe fór á toppinn Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu „Mér líður bara ömurlega“ Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Svona meiddist Elvar „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Elvar úr leik á EM Tvö hæfileikabúnt í Íslendingabæinn Kristianstad Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Sjá meira