Seðlabankinn sýknaður af kröfum Más Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. október 2012 14:35
Seðlabanki Íslands var rétt í þessu sýknaður af kröfum Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Már stefndi bankanum því að hann taldi að breytingar hefðu verið gerðar á launakjörum sem hann hafði samið um þegar hann var skipaður seðlabankastjóri. Dómurinn var kveðinn upp núna klukkan hálfþrjú. Forsaga málsins er sú að Már tók við sem seðlabankastjóri í ágúst 2009. Bankaráð sá um að semja um laun við hann og var niðurstaðan sú að hann fengi tæplega 1.575 þúsund krónur á mánuði. Í sama mánuði var lögum um kjararáð breytt þannig að valdið til að ákveða laun ýmissa yfirmanna stofnanna og ríkisfyrirtækja, þar á meðal seðlabankastjóra, var fært yfir til kjararáðs. Þá var einnig kveðið á um það í lögunum eftir breytingu að dagvinnulaun yfirmannanna ættu ekki að vera hærri en föst laun forsætisráðherra sem voru 935 þúsund krónur á mánuði. Í framhaldinu, eða í mars 2010, voru laun seðlabankastjóra lækkuð. Dagvinnulaun hans urðu 862 þúsund krónur á mánuði. Auk þess var ákveðið að greiða honum fasta yfirvinnutíma í hverjum mánuði. Með öllu urðu því launin tæpar 1.266 þúsund krónur og lækkuðu þau því um rúmar 300 þúsund krónur. Már kvaðst hafa kynnt sér starfskjör áður en hann sótti um og að lögum um kjararáð hafi verið breytt eftir að gengið var frá ráðningu hans. Það var á þeim forsendum sem hann stefndi bankanum.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Sjá meira