Kristinn Ingi þarf bara að jafna Atla til að taka gullskóinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2012 08:00 Atli Guðnason 12 mörk í 21 leik. Mark á 155 mínútna fresti. fréttablaðið/anton
Það verður barist um gull, silfur- og bronsskóinn í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag og því ekki úr vegi að skoða möguleika þeirra leikmanna sem skorað hafa mest í deildinni í sumar. FH-ingurinn Atli Guðnason er og hefur verið markahæstur í nær allt sumar en hann er með 12 mörk fyrir Íslandsmeistarana. Atli hefur eins marks forskot á Framarann Kristin Inga Halldórsson en þar sem Atli hefur spilað nær allar mínúturnar í leikjum FH í sumar þá mun hann alltaf verða undir takist Kristni eða einhverjum öðrum að jafna hann. Kristni Inga nægir því bara að jafna Atla til að taka af honum gullskóinn því hann hefur leikið þremur leikjum færra. Atli ætti að vera öruggur með gull- eða silfurskóinn enda með þremur mörkum meira en þeir sem koma á eftir þeim Atla og Kristni Inga. Kristinn Ingi hefur verið að vinna upp forskot Atla í undanförnum átta leikjum enda með 7 af 11 mörkum sínum frá því í byrjun ágúst. Atli hefur skorað þrjú mörk í síðustu átta leikjum FH-liðsins. Næstu menn eru með níu mörk og það eru Fylkismaðurinn Ingimundur Níels Óskarsson, FH-ingurinn Björn Daníel Sverrisson, og Eyjamaðurinn Christian Steen Olsen. Olsen hefur leikið leik meira og verður alltaf neðstur af þessum þremur en Ingimundur Níels verður alltaf efstur þar sem hann hefur leikið færri mínútur en Björn Daníel. Það þarf mun meira að gerast til að þeir þrír sem hafa skorað átta mörk nái að krækja sér í skó. Garðar Jóhannsson í Stjörnunni og Garðar Gunnlaugsson í ÍA búa hins vegar báðir að því að hafa leikið færri leiki og verða því alltaf ofar en níu marka mennirnir takist þeim að jafna þá. Garðar Jóhannsson hefur skorað sín átta mörk í 18 leikjum en átta mörk Garðars Gunnlaugssonar hafa komið í 19 leikjum. KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason hefur einnig skorað átta mörk en hann er meiddur og fær ekki tækifæri til að bæta við mörkum í dag. Hér fyrir ofan má sjá markahæstu leikmenn deildarinnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira