Innlent

Skattar lækki til að örva efnahagslífið

Vilmundur Jósefsson
Vilmundur Jósefsson
Samtök atvinnulífsins (SA) leggja til að skattar verði á næstu árum lækkaðir um sem nemur 2,5% af landsframleiðslu. Telja samtökin að þær breytingar sem gerðar hafa verið á skattkerfinu frá bankahruni hafi verið skaðlegar bæði skattstofnum og efnahagslífinu og að tímabært sé að vinda ofan af þeim.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu SA sem nefnist Skattstofnar atvinnulífsins – ræktun eða rányrkja? Skýrslan var kynnt á fundi í Hörpu í gær.

„Skattamál eru eitt helst áhyggjuefni félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins. Sífelldar breytingar á sköttum koma illa við fyrirtækin og kalla stöðugt fram viðbrögð,“ sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, á fundinum í gær og bætti við: „Ólíkt því sem stjórnvöld virðast trúa þá breyta skattar hegðun þeirra sem þá greiða. Skattstofnar breytast því og geta rýrnað ef óskynsamlega er að þeim staðið eða ef skattahækkanir verða óhóflegar.“

Fram kemur í skýrslu SA að skattar hafi frá árinu 2008 hækkað um 87 milljarða króna á verðlagi ársins 2013. Samsvarar það 4,5% af landsframleiðslu eða um 270 þúsundum króna á hvern landsmann á ársgrundvelli. Þá er í skýrslunni sett fram gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki virt samninga við atvinnulífið og forðast að hafa samráð við það vegna skattbreytinga.

Í skýrslunni eru einnig kynntar tillögur um breytingar á skattkerfinu. Telja SA tillögurnar til þess fallnar að bæta samkeppnishæfni atvinnulífsins og örva fjárfestingar, atvinnusköpun og þar með hagvöxt.

Leggur SA til að skattar verði á næstu árum lækkaðir um 47 milljarða króna. Vonast SA þó eftir því að verði tillögunum framfylgt stuðli þær að örari hagvexti og hafi þar með jákvæð áhrif á skattstofna. Þá vill SA mæta tekjutapi ríkissjóðs með endurbótum á vissum skattstofnum.

magnusl@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×