Innlent

Fólkið í Gambíu fær útsæði frá Íslandi

Hér sést Birna Halldórsdóttir að störfum, en hún er stjórnandi á vettvangi fyrir hönd Alþjóða Rauða krossins.
Hér sést Birna Halldórsdóttir að störfum, en hún er stjórnandi á vettvangi fyrir hönd Alþjóða Rauða krossins.
Rauði kross Íslands hóf að dreifa matvælum, útsæði og áburði í Gambíu í vikunni. Áætlað er að 35 þúsund manns fái slíka aðstoð frá Íslandi og mun aðgerðinni ljúka á næstu dögum.

Mikil hungursneyð vofir yfir íbúum Gambíu en þar hefur verið lýst yfir neyðarástandi í kjölfar meiriháttar uppskerubrests. „Það hefur gengið mjög vel að dreifa. Það eru náttúrlega rigningar sem hafa tafið, en dreifingin hefur gengið mjög vel,“ segir Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparstarfssviðs Rauða kross Íslands.

Hann segir íbúa Gambíu verulega hjálparþurfi.

„Ástandið hefur verið að versna smám saman undanfarna mánuði í kjölfar mikils uppskerubrests. Fólk borðar fyrst og fremst hrísgrjón og hrísgrjónauppskeran var aðeins tuttugu prósent af því sem venjan er,“ segir Þórir og bætir við að ekki hafi bætt úr skák að aðaltekjulind fólksins, jarðhneturækt, hafi einnig hrunið á sama tíma um 70 prósent.

„Munurinn á venjulegu árferði og nú er að hinn svokallaði hungurtími er miklu lengri þannig að heilu fjölskyldurnar eiga erfitt með aðdrátt, jafnvel í fimm til sex mánuði. Og þá óttumst við að stefni í hungursneyð verði ekkert að gert. Við höfum einbeitt okkur að þeim sem eru verst staddir í ákveðnum héruðum Gambíu,“ segir Þórir en sjálfboðaliðar gambíska Rauða krossins hafa hlotið þjálfun í því að velja hverjir eigi að fá aðstoð.

Megináhersla er lögð á að hjálpa fjölskyldum með yngri börn, enda eiga smábörn mest á hættu að skaðast af vannæringu.

„Það er verið að reyna að velja þá sem eru í mestri þörf, það eru klárlega fjölskyldur með mörg börn og fjölskyldur þar sem menn eru byrjaðir að halda í við sig í mat og hafa lítið á milli handanna,“ segir Þórir.

Rauði kross Íslands stendur af þessu tilefni fyrir fjársöfnun vegna hjálparstarfsins í Gambíu.

katrin@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×