Slitastjórn vill rifta kaupum á eigin skuldabréfum 11. júní 2012 07:00 Feldís Óskarsdóttir vildi ekki segja hvert umfang endurkaupanna á skuldabréfunum var né gegn hverjum málin beinast. fréttablaðið/GVA
Slitastjórn Kaupþings hefur sent út tugi riftunartilkynninga í tengslum við endurkaup Kaupþings á eigin skuldabréfum frá því á árinu 2008. Kaupin áttu sér stað síðustu sex mánuðina áður en Kaupþing féll og sum þeirra áttu sér stað mjög nálægt falli bankans, samkvæmt Feldísi Óskarsdóttur, sem situr í slitastjórn hans. Riftunarfrestur Kaupþings rennur ekki út fyrr en í lok júní og því hefur slitastjórnin út þennan mánuð til að höfða mál ef ekki semst um niðurstöðu. Í kynningu sem slita-stjórn Kaupþings hélt á kröfuhafafundi þann 31. maí kom fram að ?slita-stjórn hefur á síðustu mánuðum sent út allmargar riftunartilkynningar í tengslum við endurkaup Kaupþings á eigin skuldabréfum frá því á árinu 2008?. Feldís segir að um tugi mála sé að ræða. Aðspurð vildi hún þó ekki segja hvert umfang endurkaupanna var né gegn hverjum málin beinast. ?Ég vil ekki tjá mig frekar um þetta en kemur fram í kynningunni að svo stöddu. Það verða einhver af þessum málum þingfest, ef ekki nást sættir, núna í júní.? Í fundargerð kröfuhafafundar slitastjórnar sem fór fram í desember 2011 kom fram að hún hafi lagt á það áherslu í störfum sínum að rannsaka ráðstafanir sem áttu sér stað í bankanum síðustu mánuðina fyrir frestdag, einkum með tilliti til þess möguleika að höfða riftunarmál. Endurskoðunarfyrirtækið Grant Thornton í Bretlandi hafði þá unnið að rannsókninni í nokkra mánuði og byggði sú skoðun á vinnu frá PricewaterhouseCoopers og starfsmönnum Kaupþings. Í fundargerðinni kom einnig fram að slitastjórnin hefði ?að mestu lokið skýrslutökum af fyrrverandi starfsmönnum og yfirmönnum Kaupþings?. Slitastjórn Glitnis þingfesti um 20 riftunarmál gegn ýmsum innlendum og erlendum aðilum 24. maí síðastliðinn. Í þeim vill hún endurheimta um 20 milljarða króna. Landsbankinn var einnig búinn að koma tugum riftunarmála í gang áður en að málshöfðunarfrestur hans til þess rann út í apríl. Flest þeirra voru einnig vegna skuldabréfa. thordur@frettabladid.is
Tengdar fréttir Landlæknir skal eyða gögnum eftir eftirlit Landlækni ber að fá allar þær upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu sem hann óskar eftir til að sinna eftirliti sínu, en sumar má hann bara geyma í tiltekinn tíma. Heilbrigðisyfirvöld telja ótvírætt að læknum beri skylda til að afhenda landlækni þau gögn sem hann telur nauðsynleg og eru persónugreinanlegar upplýsingar þar með taldar. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps velferðarnefndar Alþingis um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. 23. júní 2012 06:30 Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmtu greinarinnar Erlent Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Erlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Erlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Fleiri fréttir Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Sjá meira
Landlæknir skal eyða gögnum eftir eftirlit Landlækni ber að fá allar þær upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu sem hann óskar eftir til að sinna eftirliti sínu, en sumar má hann bara geyma í tiltekinn tíma. Heilbrigðisyfirvöld telja ótvírætt að læknum beri skylda til að afhenda landlækni þau gögn sem hann telur nauðsynleg og eru persónugreinanlegar upplýsingar þar með taldar. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps velferðarnefndar Alþingis um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. 23. júní 2012 06:30