Táknrænn og lifandi staður 11. júní 2012 22:00 "Ég mun viljandi draga það fram í mínu starfi að ég er kona, því ég er stolt af því,“ segir Erla Björk Örnólfsdóttir. Fréttablaðið/GVA
Erla Björk heilsar okkur á skrifstofu sinni á þriðju hæð í hinu virðulega skólahúsi á Hólum. Hillurnar eru tómlegar enn, enda er þetta annar dagur hennar í embætti rektors, þeim fyrsta varði hún í fundahöld í höfuðborginni. Hún er snaggaraleg í hreyfingum þegar hún grípur hlut af borðinu og sýnir okkur. „Þetta er veldissprotinn, tákn fyrir embætti Hólarektors og mér finnst það yndislegt, enda er ég uppalin við kindur," segir hún kankvís og lyftir brennijárni sem notað var til að merkja sauðfé staðarins á hornunum, meðan þar var búnaðarskóli. Erla kveðst hafa tekið við járninu úr hendi Skúla Skúlasonar, fyrrverandi rektors, er hann lét af embætti eftir 13 ára skólastjórn, og ætla að varðveita það vel. Einstök upplifun að flytja að HólumVið Erla Björk ákveðum að ganga út í góða veðrið og spjalla saman. Skammt frá skólahúsinu er bústaður hennar, að Prestssæti númer 12, sem heitir eftir litlum hól sem sagan segir að prestur staðarins hafi notað sem sæti til íhugunar. Þaðan er góð yfirsýn yfir sveitina. Nú er flaggstöng á hólnum og þar mun Erla Björk draga íslenska fánann að húni þegar tilefni gefast. Leið okkar liggur með fram veitingastaðnum Undir byrðunni og niður í blómskrýdda brekku ofan við kirkjuna. Innt í byrjun eftir tengslum sínum við Hóla svarar Erla Björk. „Ég hafði engin tengsl við Hóla en þau mynduðust um leið og ég flutti á staðinn. Áður en ég sótti um hafði ég aðeins komið hingað einu sinni og áður en ég tók starfinu hafði ég komið tvisvar, þar sem ég kom í atvinnuviðtal." Erla Björk kveðst ekki einu sinni eiga ættir að rekja í Skagafjörðinn heldur vera Borgfirðingur, fædd og uppalin á Sigmundarstöðum í Þverárhlíð. „Ég gekk á grasi í uppvextinum og það var mögnuð upplifun að flytja aftur í sveit. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu hversu jákvæð hún var. Þó fer ég oft að Sigmundarstöðum því einn bræðra minna er þar bóndi," segir hún og bætir við: „En hingað kem ég af Snæfellsnesi og þar er einnig fögur náttúra." Áhuginn er brennandiErla Björk Örnólfsdóttir rektor.Mynd/GVAErla Björk er sjávarlíffræðingur að mennt og hefur frá árinu 2006 verið forstöðumaður Varar – Sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð. Hún lauk doktorsnámi við Texas A&M University árið 2002 og á ferilskránni eru rannsóknarstörf í Bandaríkjunum, við Háskóla Íslands og á Keldum. En hvað hefur sjávarlíffræðingur að gera svona langt inni í dal? „Starf mitt sem rektor snýst ekki um sjávarlíffræði en áhugi minn á starfinu tengist henni samt því við skólann eru fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Verið á Sauðárkróki er frábært rannsóknarumhverfi í fiskifræði, vatna- og sjávarlíffræði og tengist Hólaskóla. En ég hef líka átt hest og mér þykir hestafræðin sem hér er kennd spennandi fag og ferðamálafræðin sem boðið er upp á er fræðigrein sem á eftir að skipta verulega miklu máli næstu áratugi fyrir íslenskt samfélag. Ég hef sem sagt brennandi áhuga á þeim greinum sem hér eru kenndar og sú stjórnunar-og rekstrarreynsla sem ég hef úr Vör er veganesti sem á eftir að nýtast mér. Hlutverk rektors er að skapa umgjörð fyrir aðra í því sem þeir geta gert best, eða þannig lít ég á það. Hér er sterkt teymi einstaklinga sem hefur starfað að kennslu og stjórnun, ég er nýgræðingurinn, blaut á bak við eyrun og samstarfsfólkið er reynsluboltarnir. Ég þarf því að læra hjá öðrum en eitt af því sem hjálpar mér í því er að ég hef eldmóð og held að þetta verði mjög skemmtilegt." Stolt af að vera konaSjálf gerir Erla Björk ekkert mikið úr því að vera fyrsta konan til að taka að sér stjórn Hólaskóla, sem er 130 ára og byggir á 906 ára sögu skóla- og menningarstarfs á Hólum. „Jú, ég er sjálfsagt fyrst kvenna til að stýra hér skóla, öðrum en grunn- og leikskóla, en vonandi fer það að hætta að vera frétt þó kona taki við einhverju embætti. Skúli Skúlason, forveri minn, var fyrsti rektor Háskólans á Hólum og ég er annar svo það er 1/1. Ef ég man rétt eru þrír af sjö rektorum nú konur. Það er jákvætt og sýnir að við getum gert það sem við viljum. Ef mín ráðning verður til þess að einhverjir sjá það í nýju ljósi þá er það gott. Ég mun viljandi draga það fram í mínu starfi að ég er kona, því ég er stolt af því. Það eru fleiri konur en karlar í háskólanámi í dag. Mér finnst gaman að velta þeirri þróun fyrir mér. Það veitir manni innsýn í þá gerjun sem er í samfélaginu, hvað fólk velur sér til að hafa fyrir stafni." Reksturinn í réttum farvegiErla Björk segir námið á Hólum svolítið öðruvísi en í flestum öðrum háskólum landsins, stór hluti þess byggi á verklegum greinum og drjúgur hluti ferðamálafræðinemanna sé í fjarnámi. Samt búi fjöldi fólks á Hólum yfir veturinn. „Hólar eru magnaður staður, sögulega mikilvægur og enn í dag bæði táknrænn og lifandi. Hér eru til dæmis haldnir tónleikar í kirkjunni á hverjum sunnudegi yfir sumartímann. Fólki er virkilega annt um að viðhalda menningunni hér enda er þetta biskupssetur og skóli. Hér eru bæði grunnskóli og leikskóli og það er jákvætt fyrir barnafólk sem kemur hingað til náms eða starfa." Fjárhagur Hólaskóla – Háskólans á Hólum var á tímabili í umræðu vegna erfiðrar stöðu. Þurfti ekki hugrekki til að sækja um rektorsstöðuna í ljósi þeirrar staðreyndar? „Nei, reksturinn er erfiður eins og víða annars staðar en í réttum farvegi því á undanförnum árum hefur verið unnið gott starf," segir hún og bætir við brosandi. „En ég ætla ekkert að draga úr því að ég sé bjartsýn kona. Því mótmæli ég ekki." Fjarbúð en samt nærbúðEinkalífið er eitt af því sem ber á góma í brekkunni og í ljós kemur að Erla Björk á unnusta í Reykjavík. Hann er starfsmaður Varar, vinnur verkefni sitt hjá Matís og verður þar áfram, að minnsta kosti út næsta ár, að hennar sögn. „Við höfum verið fjarbýlisfólk milli landa og stundum milli heimsálfa, svo okkur finnst bara lúxus að vera fjarbýlisfólk á Íslandi," segir hún glaðlega og kveðst ekki ætla að fjarstýra skólanum því það sé hugmyndafræði sem ekki virki að hennar mati. „Starfsfólk Hólaskóla er búsett á staðnum og víða í sveitinni. Það tryggir hér ákveðið samfélag og samheldni. Ég tel ríkidæmi fyrir skólann að hafa kjarna af heimafólki. Þá verður þetta bústaður fólks en ekki verstöð. Í verstöðvum kemur fólk og fer og lætur sig síður varða orðspor, vöxt og viðgang staðarins, en ef það byggi þar. Þess vegna ætla ég að vera hér þó minn sambýlingur verði í Reykjavík. Ég mun kjaga hér um, kannski verð ég einhvern tímann komin upp að hnjám og enda sem moldvarpa á Hólum," segir þessi knáa kona hlæjandi. Að því sögðu stöndum við upp, röltum upp á hlað og kveðjumst á stéttinni.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Sjá meira