Innlent

Grundfirðingar veiða þorsk af bryggjunum

GS skrifar
Það veiðist ágætlega á bryggjunni í Grundarfirði.
Það veiðist ágætlega á bryggjunni í Grundarfirði. mynd/ Heimasíða Grundarfjarðar
Grundfirðingar þurfa ekki lengur að róa eftir þorski í soðið, þar sem góð veiði er af bryggjunum.Undanfarna daga hefur vænn þorskur, upp í að minnstakosti 4 kíló að þyngd, haldið sig við bryggjurnar og stundum er hann svo þéttur að það er eins og að horfa ofan í eldiskví, að horfa niður af bryggjunum, að sögn sjónarvotts.

Tíu ára strákur setti til dæmis í tvo væna þorska í gær, og hætti þá veiðum, því hann loftaði ekki meiru. Þá hafa erlendir ferðamenn dorgað fyrir þorsk af bryggjunum, og segjast aldrei hafa upplifað annað eins. Engar einhlýtar skýringar eru á þessari óvenjulegu þorskgengd á þessum slóðum, en Hafsteinn Garðarsson, hafnarvörður, segir að það hafi aðeins farið að bera á þessu fyrir tveimur árum og hafi bara aukist síðan.

Einhverra hluta vegna vill þorskurinn ekki bíta á króka handfærabátanna, en er æstur í beitu stangveiðimannanna. Annars segir Hafsteinn að það sé gríðarlegt líf í öllum Breiðafirðinum, bæði fiskur, hvalir og fuglar.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×