Bíða eftir plássi á Landspítala 14. nóvember 2012 06:00 Margar fréttir voru sagðar um gangalagnir á LSH fyrir nokkrum árum. fréttablaðið/vilhelm
Hátt í 50 einstaklingar liggja á Landspítalanum og bíða vistunar á hjúkrunarheimili en meðferð á spítalanum er lokið. Þar að auki eru margir sem eru í öldrunarendurhæfingu eða bíða hennar og því nýtast rýmin ekki fyrir bráðasjúklinga. Þetta, auk þess sem sífellt fleiri sækja þjónustu á LSH, veldur því að gangainnlagnir færast aftur í vöxt, en vandamálið var umtalað fyrir þremur til fjórum árum. Þetta kemur fram í skrifum Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, sem segir að síðustu vikurnar hafi verið óvenju mikið álag á starfsfólk spítalans. „Helsta skýring á því að það hefur þurft að leggja fólk á gangana er að ekki hefur verið til venjulegt legupláss,“ segir Björn og tekur sem dæmi að bráðainnlögnum á lyflækningasviði hefur fjölgað á síðustu tveimur árum um 20%. Hann segir ekki auðvelt að leysa úr þessum vanda með stuttum fyrirvara. Augljóst er, að mati Björns, að á næsta ári þurfi að reyna að opna og reka fleiri legurými sem nýtast fyrir sjúklinga allan sólarhringinn alla daga. „Á meðan þurfum við að berjast við að reyna að útskrifa alla sjúklinga um leið og þeir eru tilbúnir,“ segir Björn jafnframt. - shá
Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Fleiri fréttir Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Sjá meira