Ég var ekki að ljúga neinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. nóvember 2012 07:30 Einar Kristján segist vera búinn að ræða málið við Ólaf þjálfara og þeir hafi gengið sáttir frá borði. Mynd/Anton
Talsverð læti voru í kringum Blika í gær eftir að Tryggvi Guðmundsson, nýjasti leikmaður Fylkis, sakaði Einar Kristján Jónsson, formann knattspyrnudeildar Breiðabliks, um að segja ósatt. Einar Kristján sagði í samtali við vefsíðuna 433 að samkomulag hefði ekki náðst við Tryggva sem hefði æft með félaginu upp á síðkastið. Tryggvi sagði í Boltanum á X-inu 977 að það væri hreinlega rangt. Breiðablik hefði aldrei boðið honum samning. Þurfa allir að vera sáttir þegar samið er við leikmann„Nei, ég er ekki að ljúga. Ég sagði miklu meira í þessu viðtali en það var ákveðið að hafa það ekki eftir mér," sagði Einar Kristján við Fréttablaðið. En hvað vantaði í áðurnefnt viðtal sem hann vildi koma á framfæri? „Það að allir þurfa að vera sáttir þegar samið er um leikmann. Það er þjálfari, stjórnin og leikmaðurinn. Ég taldi að það hefði ekki náðst samkomulag við leikmanninn. Það er munur á því að telja það eða halda því fram. Það var ekki búið að bjóða honum samning en mér skilst að formaður meistaraflokksráðs hafi nefnt einhverjar upphæðir við hann á fundi. Ég veit ekki hvort hann hafnaði því eða ekki." Eftir það upphlaup sem varð á netinu í gær er Einar á því að hann hafi orðað hlutina klúðurslega? „Þetta var kannski misskilið. Ég veit ekki hvort þetta var klúðurslega orðað. Ég var ekki að ljúga neinu. Þegar setningar eru teknar úr samhengi þá verður stundum misskilningur." Ólafur þjálfari ekki sátturTryggvi hafði verið að æfa með Blikum og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði þjálfari félagsins, Ólafur Kristjánsson, mikinn áhuga á því að semja við Tryggva. Sami áhugi var ekki fyrir hendi hjá stjórninni. Samkvæmt heimildum blaðsins var Ólafur ekki par sáttur við þá ákvörðun stjórnar. Hann vildi þó ekki ræða málið við Fréttablaðið í gær. „Stjórnin var á því að hann hentaði ekki liðinu. Af hverju ekki vil ég ekki tjá mig um. Bæði stjórn og þjálfari verða að vera sátt við þá leikmenn sem samið er við," sagði Einar Kristján. Þýðir það að Ólafur þjálfari ráði ekki leikmannamálum félagsins? „Auðvitað stýrir hann því en það verða allir að vera sáttir. Við sköffum honum ekki leikmenn og öfugt. Hann var ekkert sérstaklega ánægður með þessa ákvörðun okkar," sagði Einar en óttast hann ekkert að vera búinn að styggja Ólaf með þessu útspili? „Ég held að Ólafur sé vel hugsandi maður og því sé svo ekki. Ég held að þetta atvik muni ekki haf áhrif á samstarf stjórnar og þjálfara. Við erum allir vel hugsandi og stefnum saman að okkar markmiðum. Þetta er sama verkefnið þó svo allir hafi ekki sömu sýn og skoðun um hvaða leið eigi að fara. Við Ólafur erum búnir að ræða málið og það er enginn órói. Ég held að menn hafi gengið sáttir frá því." Formaðurinn vildi ekki ræða það hversu margir innan stjórn hefðu ekki viljað fá Tryggva. Vildi hann sjálfur semja við Tryggva? „Ég vil ekki tjá mig um það. Þessi ákvörðun var tekin og við stöndum við það. Meira er ekki um það að segja."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira