Innlent

Mega ekki spila frítt í Kastljósi

Róbert Þórhallsson og Sigmar Guðmundsson.
Róbert Þórhallsson og Sigmar Guðmundsson.
"Þetta er skrítin staða að vera með óánægða tónlistarmenn sem vilja spila. Við viljum fá þá en það er ekki hægt. Það eru allir að tapa á þessu ástandi," segir Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóssins í Ríkissjónvarpinu.

Samningur sem Ríkissjónvarpið gerði við Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, fyrir fjórum árum hefur sökum niðurskurðar hjá RÚV orðið til þess að tónlistarmenn eru hættir að spila í Kastljósinu.

Ástæðan er sú að þátturinn getur ekki lengur borgað tónlistarmönnum fyrir að koma þar fram. Flestum tónlistarmönnum er sama þótt þeir fái ekkert greitt og þiggja kynninguna heilshugar, en samningurinn við FÍH kveður á um að hver tónlistarmaður fái um 22 þúsund krónur fyrir hverja framkomu.

Róbert Þórhallsson, stjórnarmaður í FÍH, segir að samningurinn við RÚV hafi verið gerður til að stuðla að því að tónlistarmenn fái greidd lágmarkslaun fyrir vinnuna sína. Aðspurður segir hann vel koma til greina að endurskoða samninginn í ljósi ástands mála hjá RÚV.- fb / sjá síðu 30


Tengdar fréttir

Engin tónlist í Kastljósi vegna samnings Rúv og FÍH

"Þetta er eitthvað sem okkur finnst öllum leiðinlegt, að tónlistin sé komin út úr Kastljósi. Þetta er gert út af sparnaði og ég held að þetta sé ákvörðun sem enginn er sáttur við að taka,“ segir Sigmar Guðmundsson, ritstjóri þáttarins. Samningur sem Ríkissjónvarpið gerði við Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, fyrir fjórum árum hefur sökum niðurskurðar hjá Rúv orðið til þess að tónlistarmenn eru hættir að spila í Kastljósinu. Ástæðan er sú að þátturinn getur ekki lengur borgað tónlistarmönnum fyrir að koma þar fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×