Kalla eftir mati á áhrifum stjórnarskrárbreytinganna 13. nóvember 2012 07:00 Magnús Orri Schram og Margrét Tryggvadóttir tóku við nokkur hundruð blaðsíðna skýrslu hópsins í gær líkt og aðrir nefndarmenn. Von er á frumvarpi um nýja stjórnarskrá öðru hvoru megin við næstu helgi. fréttablaðið/anton
Sérfræðinganefnd segir skorta heildstætt mat á áhrifum stjórnarráðsbreytinga. Nefndin skilaði skýrslu í gær þar sem farið var yfir lagatæknileg atriði. Von er á frumvarpi um stjórnarskrá á næstu dögum. Sérfræðinganefnd gerir ekki veigamiklar athugasemdir við drög stjórnlagaráðs að stjórnarskrá, en nefndin skilaði skýrslu um vinnu sína í gær. Henni var falið að meta drögin út frá lagatæknilegum forsendum. Auk lagatæknilegra ábendinga skilaði hópurinn almennum athugasemdum í skilabréfi. Þar leggur hann til að ýmis atriði verði skoðuð nánar. Á meðal þeirra er að meta áhrif breytinganna í heild sinni. „Ekki hefur hins vegar farið fram heildstætt og skipulegt mat á áhrifum stjórnarskrártillagnanna í heild. Það verkefni kallar á þverfaglega vinnu sem hópnum var ekki falin. Hópurinn gerir ráð fyrir að slíkt mat muni fara fram á vettvangi Alþingis en bendir að auki sérstaklega á þau atriði sem að hans mati kalla einkum á nánari skoðun,“ segir í skilabréfinu. Síðan eru fjölmörg atriði tínd til. Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir hið þrönga umboð hópsins skýra það að engar veigamiklar athugasemdir hafi verið gerðar. Hópurinn geri tæplega 80 lagatæknilegar breytingatillögur og listi að auki upp álitamál sem þinginu beri að skoða. Nefnir hann sérstaklega heildstætt mat á áhrifum tillagnanna. „Ég tel útilokað að ljúka þessu verki fyrir lok kjörtímabilsins, svo vel sé. Tæknilega séð getur Alþingi samþykkt frumvarp sem byggir á þessum grunni eftir nokkurra mánaða meðferð í þinginu. Ég óttast að málið fái þá ekki þá skoðun sem þörf krefur og venja er að viðhafa þegar stjórnarskrárbreytingar eiga sér stað.“ Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir vinnu hópsins mjög vandaða og gagnlega. Hún segir að nú þurfi að fara yfir ábendingar hópsins. Þær séu góðar og muni nýtast í vinnu þingsins. En hvenær á hún von á frumvarpi um nýja stjórnarskrá? „Þetta eru svo margar síður að það tekur einhvern tíma að koma þessu í rétt horf, en vonandi í lok þessarar viku eða byrjun næstu.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira