Innlent

Íslenska Watergate verður vistvænt hús

Til stendur að gera gagngerar endurbætur á Höfðabakka 9 og búa til vistvæna skrifstofubyggingu sem hentar vel tæknifyrirtækjum og skyldri starfsemi.
Til stendur að gera gagngerar endurbætur á Höfðabakka 9 og búa til vistvæna skrifstofubyggingu sem hentar vel tæknifyrirtækjum og skyldri starfsemi. Fréttablaðið/Daníel
Norræna ráðherraráðið hefur blásið til samnorrænnar hönnunarkeppni þar sem markmiðið er að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlöndunum. Ein bygginganna er á Íslandi en fyrstu verðlaun eru 22,5 milljónir.

Íslendingum stendur til boða þátttaka í samnorrænni hönnunarkeppni sem hverfist um að hanna vistvænar endurbætur á byggingum á Norðurlöndunum. Auglýst hefur verið eftir hönnun á fimm byggingum, þar á meðal á Höfðabakka 9 sem oft er kölluð Bogabyggingin eða Watergate.

„Þetta er opin, þverfagleg samkeppni sem ekki bara arkitektar heldur allir geta tekið þátt í. Í boði er myndarlegt verðlaunafé sem Norræna ráðherranefndin útvegar og alþjóðleg dómnefnd mun velja verðlaunahafa,“ segir Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, forstöðumaður eignaumsýslusviðs Fasteignafélagsins Reita, en Reitir eiga Höfðabakka 9.

Guðmundur Tryggvi segir að Norræna ráðherranefndin hafi síðustu ár beitt sér fyrir þróun vistvænna bygginga á Norðurlöndum. „Með það fyrir augum hefur nefndin sett á fót verkáætlun í nokkrum skrefum. Einn hluti er þessi keppni,“ segir Guðmundur Tryggvi og bætir við að í keppninni sé einnig lögð áhersla á að draga fram sérnorræn einkenni bygginganna.

Höfðabakki 9 er sjö hæða skrifstofuhús frá árinu 1980. Endurbóta er þörf á húsinu en markmið Fasteignafélagsins Reita er að búa til „vistvæna skrifstofugarða“ fyrir tæknifyrirtæki og skylda starfsemi. Að sögn Guðmundar Tryggva voru Reitir þegar byrjaðir að skipuleggja endurinnréttingu á húsinu, í samstarfi við Opin kerfi sem hafa haft aðstöðu í húsinu um árabil, þegar fyrirtækið var beðið um að leggja til byggingu í keppnina. „Okkar hugmyndir féllu mjög vel að keppninni. Fasteignafélagið Reitir og Opin kerfi urðu því fúslega við bóninni.“

Auk Höfðabakka 9 hefur verið auglýst eftir endurhönnun á byggingum í Stokkhólmi, Ósló, Ballerup í Danmörku og Tampere í Finnlandi. Skilafrestur á tillögum í keppnina er til 8. febrúar. Í kjölfarið verða fjórar tillögur fyrir hverja byggingu valdar og þróaðar áfram. Allar tuttugu tillögurnar verða verðlaunaðar og þá mun hönnunarteymið að baki þeirri tillögu sem að lokum verður valin best allra hljóta milljón norskra króna skattfrjálst í verðlaunafé, jafngildi 22,5 milljóna íslenskra króna.

magnusl@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×