Neita allri vitneskju um kókaín í töskum 12. nóvember 2012 06:00 Tollverðir í Prag leituðu lengi vel í töskum íslensku stúlknanna áður en þeim tókst loks að finna eiturlyfin sem hafði verið komið haganlega fyrir í samskeytum og milli laga í töskuefninu sjálfu.Mynd/Tékknekska lögreglan
Um þrjú kíló af kókaíni fundust í töskum tveggja íslenskra stúlkna sem lentu á flugvellinum í Prag á miðvikudag. Stúlkurnar, sem eru báðar átján ára hafa neitað sök í málinu, en voru á föstudag engu að síður úrskurðaðar í sjö mánaða gæsluvarðhald. Stúlkurnar fóru frá Íslandi í ágúst. Í síðustu viku flugu þær frá Sao Paulo í Brasilíu áleiðis til Prag með viðkomu í München í Þýskalandi. Þrátt fyrir grunsemdir þar um að stúlkurnar hefðu eitthvað misjafnt í fórum sínum voru þær látnar fljúga óáreittar áfram til Tékklands til að reyna koma yfirvöldum á spor hugsanlegra samverkamanna en sú áætlun gekk ekki eftir. Eftir tímafreka leit á flugvellinum í Prag fannst síðan efnið sem talið er vera kókaín. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa stúlkurnar borið að töskurnar séu gjöf frá Bandaríkjamanni sem þær hafi kynnst á Íslandi. Sá maður var hér á landi þar til honum var vísað á brott þar sem dvalarleyfi hans var útrunnið. "Þegar tvær átján ára stúlkur lenda í svona ógæfu reynum við auðvitað að bregðast við eins og jafnan," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um aðkomu ráðuneytisins að máli stúlknanna. "Bæði höfum við verið í sambandi við foreldra þeirra og okkar maður á staðnum hefur hitt þær báðar. Einnig höfum við tryggt að þær fái verjendur." Stúlkurnar höfðu ætlað frá Tékklandi til Kaupmannahafnar með lest en sitja nú hvor í sínu fangelsinu í Prag. Talið er að þrír mánuðir hið minnsta líði þar til dómur gengur í máli þeirra. Verði stúlkurnar sekar fundnar mun lágmarks refsing hljóða upp á fimm til átta ára fangelsisvist. Útlitið er því ekki bjart og staðan batnar heldur ekki við það að aðbúnaðurinn í tékkneskum fangelsum er fremur slæmur. Þá er enginn framsalssamningur í gildi milli Íslands og Tékklands og því ekki um það að ræða að stúlkurnar fái að afplána hugsanlega dóma hér heima á Íslandi. Össur Skarphéðinsson segir mál eins og þetta afar erfið fyrir aðstandendur, ekki síst þegar um sé að ræða kornungt fólk. "Það auðvitað veldur miklu angri. Við erum boðin og búin að gera það sem í okkar valdi stendur til að greiða götu þeirra en því miður getum við ekki hrifið menn út úr fangelsum eða varðhaldi eins og þessar stúlkur hafa verið úrskurðar í – en við gerum okkar besta," segir utanríkisráðherra. gar@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira