Margrét Lára búin að fresta aðgerðinni sinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2012 06:00 Margrét Lára verður með gegn Úkraína. Daníel
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í gær hópinn sem mætir Úkraínu í tveimur umspilsleikjum síðar í þessum mánuði, en í boði er sæti í úrslitakeppni EM. Leikið verður ytra 20. október og hér heima, á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október. Sigurður Ragnar var mjög ánægður með frammistöðu liðsins á móti Noregi og valdi sömu 18 leikmenn og fóru út til Noregs í lokaleik riðlakeppninnar. "Frammistaða liðsins var góð og við höfðum yfirburði í leiknum. Þegar við fengum greiningu á leiknum frá Prozone sáum við að við vorum mun meira með boltann, áttum fleiri heppnaðar sendingar og vorum yfir á flestum tölfræðilegum sviðum, sem er nýtt fyrir okkur á móti svona sterku liði á útivelli," sagði Sigurður Ragnar. "Við stillum upp mjög leikreyndu liði og þetta eru leikmenn sem hafa verið mjög lengi með okkur og spilað mjög marga landsleiki. Við vitum að það er gott að hafa reynslu þegar komið er í svona verkefni," sagði Sigurður. "Við höfum fengið nokkra leiki með Úkraínu senda og þetta er virkilega gott lið sem við erum að fara að mæta. Þær eru sérstaklega góðar í að halda boltanum innan liðsins og eru með vel spilandi lið," sagði Sigurður Ragnar. "Það verður áhugavert að sjá þessi tvö lið mætast því þau spila mjög ólíkan fótbolta. Ég tel samt að Úkraína sé mun sterkara lið en Írland og þetta verða því erfiðir leikir," sagði Sigurður Ragnar, en Ísland komst inn á síðasta EM eftir að hafa slegið Írland út í tveimur umspilsleikjum. Margrét Lára Viðarsdóttir er að spila á fullu með Kristianstad og verður með í þessum leikjum, en hún frestaði aðgerð sinni fram í næsta mánuð. "Ástandið á Margréti Láru er betra, sem er jákvætt fyrir okkur. Hún frestaði aðgerðinni fram til 10. nóvember. Henni sjálfri finnst hún vera í betra standi, hún er að klára 90 mínútur með Kristianstad og skora mörk, sem er mjög jákvætt fyrir okkur. Hún er að koma upp aftur," sagði Sigurður Ragnar í gær.
Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira