Fallegir tónlistarmenn spila hipphoppbræðing 28. september 2012 10:00 Fallegir menn Hljómsveitin Fallegir menn mun stíga á stokk á Faktorý í kvöld með hipphoppbræðing sinn. Sveitina skipa þekktir menn úr íslensku tónlistarlífi. Guðmundur Óskar laksdjfæaklsdjfaksdfjajsdfæ klajsdf ælaksdjf ælaksdjf æaklsdfj alæksdfj aælksdfj aæskldfj aæslkdfjasdffréttablaðið/anton
Árshátíð knattspyrnufélagsins KF Mjaðmar fer fram á Faktorý í kvöld. Í tilefni þess mun hljómsveitin Fallegir menn koma fram auk Prins Póló, Tilbury og FM Belfast. Fallegir menn var stofnuð í Menntaskólanum við Hamrahlíð og eiga hljómsveitarmeðlimir það allir sameiginlegt að vera vanir tónlistarmenn og fallegir ásýndum. Hljómsveitin var stofnuð árið 2006 en hefur starfað í núverandi mynd í rúm þrjú ár. Hana skipa Unnsteinn Manuel Stefánsson úr Retro Stefson, Axel Haraldsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson úr Hjaltalín, Atli Bollason úr Sprengjuhöllinni, Arnljótur Sigurðsson og Teitur Magnússon úr Ojba Rasta, Guðmundur Einar Sigurðarson og Aron Steinn Ásbjarnason. Guðmundur Óskar bassaleikari vill síður skilgreina Fallega menn sem ofurgrúppu og segir örlög slíkra sveita oft sorgleg. „Það hefur ekki reynst mönnum vel að stofna „súpergrúppur" enda hljóta þær iðulega sorgleg örlög. Hljómsveitin samanstendur vissulega af mönnum úr hinum og þessum hljómsveitum, en það á við um flestar íslenskar hljómsveitir." Að sögn Guðmundar Óskars spilar sveitin hipphoppbræðing og eru það Unnsteinn Manuel, Teitur og Guðmundur Einar sem rappa. „Þar sem við erum allir svo uppteknir með öðrum hljómsveitum hittumst við sjaldan og þess vegna þarf maður að setja sig í ákveðnar stellingar fyrir hipphoppið. Tónlistin er handahófskennd og strákarnir rappa á mörgum tungumálum þannig ég veit ekki hvernig mætti skilgreina tónlistina betur." Tónleikarnir hefjast klukkan 22 í kvöld og er miðaverð 1.000 krónur. sara@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira