Innlent

Ríkisendurskoðun missir traust þingsins

Alþingi Þingmenn kölluðu eftir skýrsludrögum Ríkisendurskoðunar og fullyrtu að traustið til stofnunarinnar hefði beðið hnekki.fréttablaðið/gva
Alþingi Þingmenn kölluðu eftir skýrsludrögum Ríkisendurskoðunar og fullyrtu að traustið til stofnunarinnar hefði beðið hnekki.fréttablaðið/gva
Ríkisendurskoðun nýtur ekki trausts Alþingis, ef marka má ummæli þingmanna í gær. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, segir að ófært sé annað en að lagfæra það trúnaðarrof sem orðið hafi á milli þings og stofnunarinnar.

„Það þýðir að þingið og ríkisendurskoðandi þurfa að fara yfir þetta mál og kanna hvort og þá hvernig þessu verður bjargað, þannig að það ríki aftur traust og góð samskipti á milli þingsins og einnar mikilvægustu stofnunar þess."

Tafir Ríkisendurskoðunar við vinnu á skýrslu um nýtt fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins voru þingmönnum hugleiknar í gær, en Ríkisendurskoðun heyrir beint undir Alþingi. Forsætisnefnd Alþingis tók málið ekki upp á stuttum fundi sínum í gær, en hann var helgaður rannsóknarnefnd um sparisjóðina.

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr í nefndinni. Hún segir að fundur í nefndinni sé ekki áætlaður fyrr en eftir viku. Sjálf telur hún að nauðsynlegt sé að fá frekari upplýsingar frá ríkisendurskoðanda, áður en rætt sé um trúnaðarbrest.

„Ég tel að þegar forsætisnefnd kemur saman verði óskað eftir því að farið verði yfir feril þessa máls."

Þuríður Backman, sem situr í forsætisnefnd fyrir hönd Vinstri grænna, vildi ekki tjá sig um málið í gær. Það væri stórt og viðkvæmt og þyrfti að skoða vel.

Fjármálaráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að ráðuneytið muni fara ítarlega yfir þann kostnað sem fallið hefur til vegna fjárfestinga í kerfinu og við rekstur þess, en mikilvægt sé að gera mun á því tvennu.

„Jafnframt mun ráðuneytið leggja mat á notkun kerfisins og mögulegar úrbætur, en innleiðing þess hefur stórlega bætt fjárhagsupplýsingar ríkisins til bæði stjórnunar og uppgjörs."

kolbeinn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×