Bráðadeildir Landspítalans að kikna vegna fjölgunar 24. ágúst 2012 05:30 Reynt hefur verið að fjölga starfsfólki til að mæta fjölgun á bráðadeildir LSH.fréttablaðið/gva
Annað árið í röð er mikil aukning á komum á bráðadeildir Landspítalans (LSH). Forstjórinn segir þetta áhyggjuefni en ekki auðvelt að greina hvað veldur. Að meðaltali koma yfir 200 manns á bráðadeild LSH í Fossvogi. Björn Zoëga, forstjóri LSH, vék að því í pistli á heimasíðu LSH síðastliðinn föstudag að sumarstarfið hefði gengið vel. Hóflegt álag hefði verið víða á spítalanum en álagið þó of mikið á bráðamóttökurnar; Hjartagáttina á Hringbraut og í Fossvogi. Inntur eftir því hversu mikil aukningin hefur verið síðustu tvö ár segir Björn að 1.700 fleiri hafi sótt á bráðadeildina í Fossvogi það sem af er ári. Það er 4,1% aukning og á hverjum degi komi því yfir 200 manns í Fossvoginn að meðaltali. Alls hafa um tvö þúsund fleiri sótt bráðamóttökurnar nú en í fyrra. Árið 2011 var aukningin 5,6% allt árið eða á sjötta þúsund fleiri heimsóknir. Þar af var aukningin í Fossvogi 4,5% eða 2.700 fleiri. „Þetta er mikil aukning, sérstaklega þegar maður horfir á tölurnar um fjölda einstaklinga. Við höfum af þessu miklar áhyggjur og þetta hefur skapað mikil vandræði, til dæmis í sumar,“ segir Björn. Spurður um ástæður þessarar fjölgunar á bráðadeildunum segir Björn að það hafi ekki verið skoðað nákvæmlega hvað veldur. Það sé ekki lagt á sjúklingana, sem leita á deildirnar, að spyrjast fyrir um ástæður heimsóknar þeirra. „En starfsmenn mínir hafa nefnt að ástæðan sé einfaldlega sú að erfitt sé að komast að annars staðar í kerfinu; að meira sé um lokanir og samdrátt í þjónustu annars staðar í heilbrigðiskerfinu. Við höfum hins vegar ekki yfirlit um slíkt. Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort fólk sé veikara; þurfi frekar en áður á okkar þjónustu að halda. Innlagnir á Landspítalanum benda ekki til þess. Hlutfall þeirra sem leggjast inn hefur ekki hækkað. Aukningin er vegna minni vandamála, ekki alvarlegri veikinda,“ segir Björn. Fram kemur í pistli forstjórans að hálfsársuppgjör spítalans sé væntanlegt í dag. Hann skrifar að starfsmenn hafi áhyggjur af því að spítalanum sé gert að spara, eins og síðustu ár. „Ég hef reynt að fullvissa viðkomandi starfsmenn um að það sé orðið ómögulegt að spara meira á spítalanum og er því nokkuð bjartsýnn á að það sé skilningur fyrir því hjá ríkisstjórninni,“ segir Björn. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira