Margir selja málverkin sín eftir hrunið 18. ágúst 2012 13:00 Góðar myndir eftir Jóhannes Kjarval geta selst á um og yfir fjórar milljónir króna í dag.
Mikil breyting hefur orðið á listaverkamarkaðnum á Íslandi síðan haustið 2008. Framboð á ódýrari verkum hefur aukist mjög og verð lækkað. Eitthvað er um að fólk fjárfesti í listaverkum, en þó minna en áður. Framboð á íslenskum málverkum hefur aukist mjög á síðustu árum. Um leið hafa málverkin hríðfallið í verði og dæmi eru um að verið sé að selja verk á uppboðum fyrir einungis helming af verðmati. Eitthvað er um að efnafólk fjárfesti í dýrari málverkum, en að sögn Tryggva Friðrikssonar, eins eigenda Gallerís Foldar, er það ekki nægilega mikið og mun minna en fyrir árið 2008. „Fólk er vissulega að selja málverkin sín í mun meiri mæli," segir Tryggvi. „En það er alltaf skortur á úrvalsmálverkum. Þau seljast fyrr og verðið á þeim hefur ekki lækkað." Með úrvalsmálverkum er til dæmis átt við listaverk eftir „gömlu meistarana" eins og Kjarval, Ásgrím Jónsson, Svavar Guðnason, Louisu Matthíasdóttur, Gunnlaug Scheving, Guðmundu Andrésdóttur og fleiri. Sum verk eftir þau geta selst á meira en fjórar milljónir króna í dag. Gallerí Fold hefur staðið fyrir uppboðum á málverkum á netinu í eitt ár og segir Tryggvi það hafa breytt miklu. Á síðasta ári seldi galleríið 1.600 myndir á uppboðum, þar af 600 á netinu. Árið 2010 voru um þúsund myndir seldar, einungis á beinum uppboðum. „Netið hefur breytt markaðnum alveg rosalega, það er ótrúlegt," segir hann. „Maður af gamla skólanum eins og ég hafði enga trú á því að það munaði svakalega miklu að hafa netið." Þá hefur dregið mjög úr beinni sölu í galleríum. „Það er bara brot af því sem það var fyrir hrun og mjög hægur bati þar á." Viktor Smári Sæmundsson, eigandi listaverkasölunnar Stúdíós Stafns, tekur undir orð Tryggva og segir sölu á dýrari verkum hafa dregist verulega saman eftir hrun, þó hún hafi verið að glæðast undanfarna mánuði. Þá sé framboð á ákveðnum verkum orðið mun meira, sem verði til þess að þau falla í verði. „Fólk hefur verið að tína allt til og endurmeta hvað það á og skoða hvað það á til að koma því í verð," segir Viktor. „En það er oft verið að láta þessi verk fara á hálfvirði miðað við matsverð. Ef menn ætla að eignast gott listaverkasafn verða þeir að hafa auga fyrir því sem heldur sér í verði. Oft þarf næmt auga eða sérfræðing í það." Viktor tekur einnig eftir annarri breytingu sem átti sér stað við hrunið er varðar listaverk og sölu. „Fólk hugsar betur um listaverkin sín og vill halda þeim heilum. Það er mikið meira að gera í viðgerðum á verkum," segir hann. „Fólk hugsar betur um hlutina sína og vill að þeir séu í lagi. Ætli það sé ekki eitt af því jákvæða við hrunið." - sv
Mest lesið Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira