Fréttaskýring: Reikningur samfélags sem er í fjárhagslegum bata 9. ágúst 2012 03:30 Hagfræðingur við Háskóla Íslands segir ríkisreikning bera það með sér að samfélagið sé í bata. Ef ekkert óvænt gerist erlendis sé hremmingunum að ljúka.fréttablaðið/ernir
Er kreppunni lokið? Mánaðaruppgjör A-hluta ríkissjóðs, sem birt var í gær, sýnir að á fyrstu sex mánuðum ársins námu tekjur ríkissjóðs 251,9 milljörðum króna. Það eru 23,2 milljörðum hærri tekjur en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Á sama tímabili voru útgjöld undir áætlun um 6,4 milljarða, en gjöld ríkisins námu alls 568,6 milljörðum króna. Ríkisreikningur sýnir því ágæta stöðu. Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir reikninginn líta ágætlega út. „Sá efnahagsbati sem menn hafa verið að tala um að megi glögglega sjá í þjóðhagsreikningum er einfaldlega farinn að skila sér inn í ríkisreikninginn. Það er ekkert eitt sem hægt er að benda á, heldur er öll tekjuhliðin upp á við.“ Daði Már segir einnig að jákvæður árangur hafi náðst á gjaldahliðinni. „Ég held þó að það ætti að taka þeim tölum með smá fyrirvara vegna þess að milli-uppgjör eru oft háð tilviljanakenndum sveiflum. Það er erfitt að segja fyrir um það hvort síðari helmingur ársins muni ekki bera þess merki að fyrri helmingurinn líti vel út,“ segir Daði. Þar vísar hann til þess að ef eitthvað líti sérstaklega vel út á fyrri helmingi geti það verið vegna þess að töf hafi orðið á útgjaldaliðum og þeir eftir að koma fram síðar. „Ég mundi því ekki segja að þetta væru óyggjandi merki um að aðhald í ríkisrekstri sé farið að skila gríðarlegum árangri fyrr en ég sé lokatölurnar.“ Daði segir að tekjur ríkisins aukist greinilega í takt við batnandi afkomu í samfélaginu, meiri umsvif og hagvöxt. En er kreppunni lokið? „Þetta er reikningur samfélags sem er í bata. Við getum sagt að merki þess séu mjög víða og mjög greinileg. Ef ekkert óvænt gerist erlendis þá horfir í það já, að þessum hremmingum sé að ljúka,“ segir Daði. Forgangsverkefni sé hins vegar að ná jákvæðum frumjöfnuði. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira