Fjölskyldufólk streymir aftur í frí til útlanda 3. ágúst 2012 04:30 Ódýrari ferðir hafa meðal annars stuðlað að því að fjölskyldur fara nú oftar til útlanda. fréttablaðið/valli
Sprenging hefur orðið sumarfrísferðum fjölskyldufólks til útlanda, segir forstjóri Úrvals Útsýnar. Þetta var sá hópur sem sparaði við sig í ferðalögum eftir hrun. Markaðsaðstæður hafa verið ferðalöngum í vil. Fjölskyldur hafa nú byrjað að njóta sumarfrísins í útlöndum í meiri mæli en áður. Í júní ferðuðust rúmlega fimm prósent fleiri Íslendingar til útlanda en í sama mánuði í fyrra. Þessu finna ferðaskrifstofurnar verulega fyrir og segja fjölskyldur nú byrjaðar að ferðast meira en áður. „Við höfum upplifað talsverða eftirspurn og strax í fyrra fór markaðurinn að taka hressilega við sér,“ segir Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri Úrvals Útsýnar. „Fjöldinn af fjölskyldufólki kom verulega til baka í fyrra. Það var líka sá hópur sem hrökk mest saman eftir hrun. Þetta hefur verið algjör sprenging,“ segir Þorsteinn. Tómas Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, hefur svipaða sögu að segja. „Þeir sem hafa sparað við sig eftir kreppu eru aftur byrjaðir að hugsa sér til hreyfings. Fjölskyldufólk er byrjað að ferðast meira og sá hópur er farinn að vaxa aftur. Fararstjórarnir okkar úti finna vel fyrir því,“ segir Tómas. Bæði Tómas og Þorsteinn segja markaðsaðstæður hafa haft mikil og jákvæð áhrif á ferðaplön Íslendinga. Mikil samkeppni sé á markaðnum, sérstaklega hjá lággjaldaflugfélögunum. Fleiri hafi því séð sér fært að skreppa til útlanda en áður. katrin@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira