Yfirheyrslur í allan dag yfir Outlaws-mönnum Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. október 2012 16:43
Yfirheyrslur hafa staðið yfir í allan dag yfir þrettán, af sextán manns, sem handteknir voru í aðgerðum lögreglunnar gegn Outlaws í gærkvöld. Aðgerðirnar hófust um klukkan átta og stóðu fram yfir miðnætti. Lagt var hald á nokkra tugi gramma af sterkum fíkniefnum, stera, bruggtæki og bæði landa og gambra. Hluti fíkniefnanna fannst í húsnæði vélhjólagengisins í Hafnarfirði. Alls voru framkvæmdar fjórar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu, tvær á Suðurnesjum og ein í Árnessýslu. Sumir hinna handteknu voru einnig handteknir í aðgerðum lögreglunnar gegn vélhjólagengi í síðasta mánuði. Eftir aðgerðirnar í gærkvöld voru þrettán, ellefu karlar og tvær konur, vistaðir í fangageymslu lögreglunnar, en yfirheyrslur hafa staðið yfir í allan dag. Ekki hefur verið tekið ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir einhverjum þeirra. Eins og áður hefur komið fram var um að ræða sameiginlegar aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embættis ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Suðurnesjum og lögreglunnar í Árnessýslu. Til viðbótar því sem áður var nefnt var einnig lagt hald á ætlað þýfi og margskonar eggvopn. Flestir hinna handteknu eru meðlimir í vélhjólagenginu og hafa jafnframt áður komið við sögu hjá lögreglu. Yfir sjötíu lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum, sem voru nokkuð umfangsmiklar, auk starfsmanna tollgæslunnar sem aðstoðuðu við húsleitir með sérþjálfuðum hundum.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Sjá meira