Mikið unnið úr TALIS-rannsókn hér á landi 30. júlí 2012 03:00 Kennarakönnun Julie Bélanger hjá OECD segir íslensk yfirvöld hafa brugðist vel við niðurstöðum TALIS-könnunar árið 2009. Ný rannsókn hefst í vetur. FRéttablaðið/VAlli
Íslensk menntamálayfirvöld leggja mikið upp úr því að bæta skólastarf og sést það vel á þátttöku í TALIS-rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Þetta segir Julie Bélanger, forvarsmaður verkefnisins, en markmið rannsóknarinnar, sem nú er að hefjast í annað skiptið, er að varpa ljósi á aðstæður kennara, starfsumhverfi og viðhorf, til notkunar í stefnumótun. Á dögunum fór fram hér á landi vinnufundur fulltrúa frá OECD og löndunum 34 sem taka þátt að þessu sinni. Rannsóknin fer fram með þeim hætti að allir kennarar á unglinga- og framhaldsskólastigi svara spurningalistum um starf sitt. "TALIS er afar mikilvæg rannsókn því að þetta er fyrsta alþjóðlega verkefnið þar sem aflað er gagna til samanburðar á vinnuaðstæðum kennara og starfsemi í kennslustofum," segir Bélanger og bætir því við að með þessu sé kennurum gefin rödd til að tjá sig. "Gögnin sem fást með TALIS gera löndum kleift að bera sig saman við önnur lönd sem fást við hliðstæðar áskoranir og læra af þeirra reynslu." Bélanger segir Ísland í nokkrum sérflokki þar sem óvíða hafi verið unnið eins mikið og markvisst með niðurstöður rannsóknarinnar árið 2009 og hér. "Íslensk yfirvöld nýttu sér niðurstöðurnar í meiri mæli til stefnumótunar en flest önnur þátttökulönd. Sú staðreynd að Ísland tekur þátt í rannsókninni á ný sýnir jafnframt hve mikið er lagt upp úr bættum starfsháttum." Könnunin verður gerð næsta vor og niðurstaðna er að vænta næsta sumar. - þj
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira