Ný tækni eykur lyfjaöryggi 18. júní 2012 10:00 MedEye nýtir tölvusjón og háþróaða greiningartækni og vinnur með hjúkrunarfræðingunum.
Íslenskt fyrirtæki hefur þróað lyfjaskanna sem ber kennsl á lyf. Getur komið í veg fyrir nær öll mistök við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf. Mikill áhugi er á skannanum erlendis. Framleiðslan verður á Íslandi. Íslenskt hátæknifyrirtæki, Mint Solutions, hefur þróað lyfjaskanna sem gjörbyltir öryggismálum vegna lyfjagjafar á sjúkrahúsum. Skönnun lyfjanna fer fram á stofu sjúklingsins rétt áður en honum eru gefin lyfin. Hjúkrunarfræðingar geta því komið í veg fyrir nær öll þau mistök sem orðið geta við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf, að því er Gauti Þór Reynisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og einn stofnenda þess, greinir frá. „Þetta er í raun tæki sem vinnur með hjúkrunarfræðingunum. Það ber kennsl á lyf og hjálpar þannig til við að greiða úr þeim flækjum sem upp geta komið.“ Að sögn Gauta hefur í raun ekki verið til nein handhæg lausn við vandamálum sem geta komið upp við lyfjagjöf. „Í niðurstöðum rannsóknar sem birtar voru fyrir um mánuði í Hollandi er greint frá því að árlega deyja 1.200 manns þar í landi vegna lyfjamistaka. Þetta er alþekkt vandamál í heilbrigðisgeiranum en erfitt hefur verið að vinna bug á því hingað til.“ Gauti getur þess að helsti valkosturinn fram að þessu hafi verið kostnaðarsöm og flókin strikamerkjakerfi. „Sjúkrahúsin auka ekki bara öryggið, heldur spara þau sér mikla vinnu og fjármagn með því að nota lyfjaskannann.“ Lyfjaskanninn, sem nefndur er MedEye, nýtir tölvusjón og háþróaða greiningartækni. Hann hefur verið prófaður á þremur sjúkrahúsum í Hollandi undanfarna mánuði. Stjórnendur þeirra hafa nú ákveðið að kaupa slíka skanna og gert er ráð fyrir að tækin verði komin í fulla notkun þar fyrir jól, að því er Gauti greinir frá. Nýlega var gerður samningur við norskt hugbúnaðarfyrirtæki um dreifingu á tækninni í Noregi, sem gerir rúmlega 70 prósentum allra norskra sjúkrahúsa kleift að nýta sér lausnina. Mint Solutions á í viðræðum við hugbúnaðarframleiðendur sem þjónusta nær 75 prósent af hollenska markaðnum, um helming sjúkrahúsa í Finnlandi og rúmlega 40 prósent allra sjúkrahúsa í Danmörku. Viðræður við íslensk sjúkrahús um kaup á lyfjaskannanum eru að hefjast. Öll þróunarvinna fer fram á Íslandi en fyrstu tækin voru framleidd í Hollandi. „Við höfum hins vegar samstarfsaðila á Íslandi þegar kemur að stærri pöntunum,“ tekur Gauti fram.- ibs
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira