Banaslysum barna hefur snarfækkað 13. júní 2012 10:00 Öll börn á Íslandi eiga möguleika á ráðlögðum öryggisbúnaði, svo sem barnabílstól. fréttablaðið/anton
Ísland fær næstbestu einkunn í rannsókn á slysavörnum barna í Evrópu. Finnland skorar hæst. Umferðarslys er helsta ástæða dauðsfalla vegna slysa ungmenna á Íslandi. Banaslysum barna hefur fækkað um 65 prósent síðan 1991. Ísland fær góða einkunn í nýrri rannsókn um slysavarnir barna sem kynnt var samtímis í 31 landi vítt og breitt um Evrópu í gær. Ísland fær hálfu stigi minna en Finnland og er í öðru sæti þátttökulandanna. Einkunnagjöfin byggist á frammistöðu stjórnvalda í slysavörnum barna, fé til reksturs verkefnis og hvort virkur stýrihópur sé til staðar. Herdís Storgaard leiddi verkefnið á Íslandi sem nefnist Árvekni og miðar að því að bæta öryggi í umhverfi barna. Verkefnið hefur verið starfrækt síðan árið 1991. Síðan þá hefur banaslysum á börnum fækkað um 65 prósent og öðrum slysum um helming. Lagaumhverfi á Íslandi er varðar slysavarnir barna hefur batnað mjög síðan verkefnið var sett á laggirnar. Þó fær umgjörð um slysavarnir barna lægri einkunn en í fyrri niðurstöðum. Þar er því um að kenna að fjárveitingar til málaflokksins hafa dregist saman í kjölfar efnahagshrunsins. Íslensku gögnin í rannsókninni eru frá 2009. Það ár voru 16 prósent allra dauðsfalla barna og ungmenna af völdum slysa. Bent er á í niðurstöðum rannsóknarinnar að þegar litið er á ástæður banaslysa vega umferðarslys þyngst, sérstaklega í aldurshópnum 15 til 19 ára. Einnig kemur fram að sjálfsvíg vega þyngst í sama aldurshópi þegar litið er á dauðsföll vegna ásetnings. Öryggisumhverfi barna á Íslandi mælist betra hér á landi en meðaltal allra landanna sem könnuð voru. Gögnin benda því til þess að ráðlagður öryggisbúnaður, eins og barnabílstólar, hjólreiðahjálmar og reykskynjarar, sé aðgengilegur öllum fæddum börnum hér á viðráðanlegu verði. Þó eru björgunarvesti undanskilin en íslensk börn eiga minni möguleika á að komast yfir slíkt en jafnaldrar þeirra í Evrópu. Herdís sagði að til að bæta stöðu Íslands enn frekar þyrfti að skapa betri umræðu í samfélaginu um slysavarnir. Þá lagði hún áherslu á að henni þætti mikilvægt að allar slysavarnir á vegum stjórnvalda væru undir sama þaki og þær yrðu samþættar að einhverju marki. Verkefnið miðlar forvörnum sínum til foreldra ungbarna. Til þess hefur verið komið upp kennslurými í Slysahúsi þar sem foreldrum gefst tækifæri til að kynna sér helstu forvarnaúrræði á heimilum. Kynjahlutföll foreldra sem sækja kynningar í Slysahúsi hafa orðið jafnari á þeim tuttugu árum sem þjónustan hefur verið starfrækt. Árið 1991 voru feður aðeins tvö prósent þeirra sem sóttu námskeiðin. Í dag er hlutfallið jafnt milli mæðra og feðra. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira