Skoðun

Hjálpum fólki í neyð

Kristján Sturluson skrifar
Um 430.000 manns, þar af 74.000 börn undir fimm ára, þjást nú vegna mikils matvælaskorts í Gambíu, minnsta ríki á meginlandi Afríku. Gambía er eitt fátækasta land heims og er hluti af Sahel svæðinu sunnan Sahara þar sem milljónir manna svelta nú heilu hungri.

Hlér Guðjónsson, sendifulltrúi Rauði krossins, hefur síðustu tvær vikur verið í Gambíu og metið þörfina fyrir neyðaraðstoð í landinu. Um 75% landsmanna lifa af landbúnaði og eru hrísgrjón aðalfæða fólksins. Gríðarlegir þurrkar leiddu til þess að hrísgrjónauppskeran síðasta haust var aðeins um fimmtungur af því sem hún var árið áður.

Fjöldi fólks á nú hvorki mat fyrir börnin sín né útsæði til að planta í akra sína. Fólk selur það litla sem það á til að eiga fyrir nokkrum bollum af hrísgrjónum. Þeir sem eiga húsdýr hafa margir slátrað þeim til matar fyrir fjölskylduna. Börn eru tekin úr skóla og send út að leita að mat.

Rauði krossinn á Íslandi hefur svarað neyðarbeiðni frá Gambíu og er að hefja umfangsmikla dreifingu matvæla og útsæðis til um 50.000 manns sem verst eru settir. Áhersla er lögð á að hjálpa fjölskyldum með börn yngri en fimm ára en þau eru í mestri hættu vegna vannæringar.

Systurfélag okkar, Rauði krossinn í Gambíu, hefur dreifingu á útsæði og matvælum til þeirra fjölskyldna sem mest þurfa á hjálp að halda um miðjan júní. Miklu skiptir að vinna hratt til að fólk eigi að borða og eigi möguleika á að planta útsæðinu án tafar og tryggja sér uppskeru í haust. Þannig hjálpum við fólki til að hjálpa sér sjálft.

Birna Halldórsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins, er komin til Gambíu þar sem hún mun stýra neyðaraðstoð Íslands fram á haustið og sjá til þess að hún komist til skila.

Rauði krossinn á Íslandi biður almenning að leggja neyðaraðstoðinni lið. Það má gera á vefsíðu okkar raudikrossinn.is eða með því að hringja í söfnunarsímann 904 1500 og gefa þannig 1.500 krónur. Það eru ekki miklir peningar á Íslandi en geta skipt sköpum fyrir fólk sem á engan mat fyrir börnin sín.




Skoðun

Sjá meira


×